Og vaki nú allar góðar vættir yfir Íslandi

Megi okkur verða forðað frá frekara ráðaleysi og ringulreið duglausustu ríkisstjórnar lýðveldisins sem allra fyrst.

Og vaki nú allar góðar vættir yfir Íslandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl vertu.

Ég sem hélt að Sóley ætlaði að bjarga heiminum en svo gerir hún bara ekki neitt í þessu máli.  Þegir bara þunnu hlóði og fer lítinn.  Það er þá eftir allt saman lítil björg í henni þegar á bjátar.

Kveðjur.

Skósveinn (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 11:01

2 identicon

Jæja fólk bara komið í yfirnáttúrulegan gír.. traustvekjandi ha ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 13:43

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Sem stjórnmálamaður áttu að skammast þín fyrir færsluna.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 6.10.2008 kl. 14:24

4 identicon

Sæl G.Lilja. Þessi stjórn hans Geirs á nú ekki langt eftir. Góðar vættir hafa vakað yfir Íslandi.

Gunnsteinn Gunnarsson (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 15:35

5 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Ég tek undir með Heimi

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 6.10.2008 kl. 16:21

6 identicon

Þeir sem eiga að skammast sín Heimir og Gísli eru þeir sem eru búnir að koma okkur í þessar ógöngur og hafa allan tímann skellt  fullkomnum skollaeyrum við öllum aðvörunarorðum og tillögum sem lagðar voru fram til að koma í veg fyrir það sem við stöndum frammi fyrir nú. Til þessa hefði ekki þurft að koma, það er staðreynd. Hrokinn og græðgin hafa fengið að ráða för, algjörlega stjórnlaust, og þar mega þeir skammast sín sem bera sök. Það er illt til þess að vita að sama fólkið og sömu öflin og bera ábyrgð á þessum ósköpum er nú enn við stjórnvölinn og þrífst í skjóli meðvirkninnar. 

Guðfríður Lilja (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 16:33

7 identicon

Góðan dag.

,,...duglausustu stjórnar lýðveldissins..." Ertu of ung til að muna eftir ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen? Hann vitnaði í Einar Ben. sem sagð í ljóði ,,vilji er allt sem þarf", og ,,stjórnin" lét þar við sitja. Verðbólgan fór í a. m.k. 80% af 100% heimatilbúnum orsökum. Ég fór að óttast verulega þegar Ingibjörg S. endurtók þetta.

Aðalsteinn (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 14:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband