Bílnum stolið, Íslandsmeistaratitill í höfn, flensan á fullu og græn velferðarstjórn í sjónmáli!

 

Jæja.

Ég er mætt aftur á bloggið eftir alltof langt frí. Ætla mér nú aftur að taka upp á þeim sóma að skrifa daglega.

Undanfarnir dagar og vikur hafa verið viðburðaríkir. Svo eitt lítið dæmi sé nefnt þá var bílnum okkar stolið í vikunni.

Ég labbaði út á stæði fyrir framan húsið okkar snemma morguns og bíllinn sem ég hafði lagt þar kvöldinu áður var horfinn. Ég hélt fyrst að það hlyti að vera ég sem væri að kalka - man ég ekki hvar ég lagði bílnum? - en á endanum töluðu staðreyndirnar sínu máli. Bíllinn var horfinn.

Síðar um daginn var hringt frá lögreglunni og sagt að bíllinn hefði fundist. Það hefði verið keyrt út af á honum, það hefði kviknað í honum og hann væri ónýtur. Það hefði verið kallaður til dráttarbíll og farið með hann í geymslu, við gætum hugsanlega kíkt á hann þar. Eftir nokkra daga. 

Spennandi.

Þegar ég kom á staðinn var ég voða glöð - mér var tjáð að ég gæti keyrt bílinn, það þyrfti bara að setja hann í skoðun. Reyndar hefði líka verið kveikt í einhverju INNI í bílnum, og þess vegna væri þessi megna og stæka lykt, en annars virtist hann vera í þokkalegu lagi. Ég ætti bara að borga fyrir flutning og geymslu...

Þetta var allt dálítið athyglisvert og skrítið...

Þótt ég sé mikil hjólakona og nokkur göngugarpur og mér þyki miklu betra að fara í strætó heldur en í bíl (í alvöru, mæli með því, miklu meira afslappandi og gott að vera í strætó, frjáls tími!), þá útheimtir stundataflan mín stundum að ég sé í Grafarvogi kl. 10, Hafnarfirði kl. 11.00, í Skeifunni kl. 12.30... osfrv. Og þá verður þetta pínu snúið bara á hjólinu... Forræðishyggja einkabílsins er algjör á Íslandi og ég ætla ekki einu sinni að byrja að tala um hversu nauðsynlegt það er að byggja hér upp miklu betri almenningssamgöngur og hjólabrautir í takt við hin Norðurlöndin, nóg um það í bili...

Þetta er fyrsti og eini bíllinn minn (reyndar eigum við hann eiginlega fjórar saman, hann er sem sagt eiginleg sameign og ég er ekki skráð fyrir honum, en mér skilst að "sameign" sé orðið óskiljanlegt og marklaust hugtak nú til dags svo við sleppum þeim kapítula). Eftir tveggja ára samleið þykir manni pínu leiðinlegt ef einhver fer illa með hann. Hann er "gömul drusla" en búinn að vera voða duglegur þessi tvö ár og meira að segja búinn að keyra okkur hringinn í kringum landið með miklum sóma. Flottur. 

Sem sagt. Ég bruna af stað úr stæðinu, ánægð með minn gamla, en við fyrstu beygju kemur í ljós að bíllinn er gjörsamlega bremsulaus. Ekki nokkur einasta tenging við bremsurnar.

Í eitt augnablik stoppaði í mér hjartað og ég sá okkur þeysast inn í næsta húsvegg en svo reif ég í handbremsuna og kastaði í hlutlausan og einhvern veginn tókst okkur gömlu góðu bíldruslunni sem var kveikt í að forða okkur. Það er merkilegt hvað hugurinn nær að hugsa ótrúlega mikið á einu sekúndubroti - svona þegar á hann er kallað.

Þetta er sem sagt eitt af því litla sem hefur hent síðustu daga og vikur. Það er af ótal mörgu öðru að taka! 

Ég verð annars að fá að nefna að mitt frábæra skákfélag, Taflfélagið Hellir, varð Íslandsmeistari skákfélaga um síðustu helgi. Ég hef verið í Helli nánast frá stofnun félagsins og var agalega montin af þeim, til hamingju! Gunni vinur minn formaður Hellis minnti mig af þessu tilefni á að ég hefði unnið fyrstu skák Hellis á Íslandsmóti skákfélaga þegar félagið tók fyrst þátt í mótinu (fyrir þó nokkrum árum síðan). Þá var félagið "smátt, sterkt og skemmtilegt" en nú er það bara "sterkt og skemmtilegt" af því að það stækkaði svo hratt - og verðskuldað. Gunni móðgaði mig hins vegar stórlega um leið og hann minnti mig á þetta: "Bílnum þínum stolið? Hverjum dettur í hug að stela svona druslu?" Nei, þetta var ekki grín hjá honum, kom alveg sjálfkrafa - hann var einlæglega hissa.

Ég ligg í flensu núna og vorkenni sjálfri mér en fögnuðurinn hið innra lætur ekki segjast:

Það stefnir allt í nýja græna velferðarstjórn í vor!!!

Við vinstrigræn mælumst nú með 25,7-27,5% fylgi og það er einfaldlega stórkostlegt! Fólk vill breytingar - og tími breytinganna er sannarlega kominn. Við erum hér! Ekki lengur smá, sterk og skemmtileg - heldur sterk og skemmtileg!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Góðan bata og bílahremmingar vonandi fljótt að baki. Langtímafréttirnar eru miklu skemmtilegri, VG í verulegri uppsveiflu, gæti ekki verið betra.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 11.3.2007 kl. 19:16

2 Smámynd: Gunnar Björnsson

Frábær pistill hjá þér!  Gott hjá þér að "stela" góðu slagorði.  Ég stend hins vegar alveg við það að hverjum detti í hug að stela svona druslu!

Gunnar Björnsson, 11.3.2007 kl. 19:22

3 Smámynd: Snorri Bergz

Ég bendi svo á, að hefði Matthías Kjeld ekki teflt áfram með koltapað í 2 klst, hefði ég unnið fyrstu skák Hellis í deildakeppninni!

Annars gaman að sjá að þú ert orðin rólfær og byrjuð að blogga aftur. En ef þú finnur þennan þjóf, máttu benda honum á bíldrusluna mína. Ég hef gleymt að taka hana úr kaskó!

En þrátt fyrir mismunandi skoðanir á pólítík, erum við auðvitað Gens una sumus.

Snorri Bergz, 11.3.2007 kl. 19:32

4 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Vonandi fer flensan sem fyrst ...

Gaman að heyra að þú ætlir að blogga reglulega...þú ert frábær penni!

Leitt með bílinn...og svo þurftir þú að borga???

VG verða vonandi með í næstu Ríkisstjórn með allt þetta fylgi! 

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 11.3.2007 kl. 19:37

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Gaman að lesa bloggið þitt, leiðinlegt þetta með bílinn. er það ekki óalgengt á Íslandi að fl. eigi bíl saman? þetta þekkist vel hérna í kringum mig, og er góð hugmynd !

kær kveðja Steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 11.3.2007 kl. 20:06

6 Smámynd: Kristján Pétursson

VG brutu upp samstarfið í R-listanum og afhentu þar með íhaldinu meirihluta í borgarstjórn með einni framsóknarhækju.Nú boðar þú Guðfríður Lilja velferðarstjórn í vor.Ykkur hefur tekist með tilstyrk íhaldsins að ná kvennafylginu frá Samf.,Með endalausum rógi gegn Ingibjörgu Sólrúnu  hefur íhaldinu tekist að rægja hana og gera hana tortryggilega.Það er hægt að eyðileggja alla stjórnmálamenn með stöðugri áreitni og ósannyndum,án þess að viðkomandi stjórnmálamaður hafi gefið neitt sérstakt tilefni til.

Ingibjörg Sólrún verðskuldar ekki  að kvenfylgi frá Samf. streymi til ykkar VG,hún hefur um áratugaskeið verið í fararbroddi jafnréttis - og kvenréttindamála hér á landi.Það hefði átt að vera metnaðarmál kvenna,  að hún yrði næsti og fyrsta konan til að gegna forsætisráhr.embættinu.Ég sé það ekki fyrir mér,að nokkur samstaða verði við VG um næstu ríkisstjórn,þeir eru búnir leynt og ljóst að vinna gegn Samf.í náttúrverndarmálum til að afla sjálfum sér fylgi á kosnað Samf.því þar væri auðveldast fyrir VG að vinna sér fylgi.

Ég sé heldur ekki fyrir mér,að VG myndu eiga nokkra samstöðu með Samf.í varnar - og öryggismálum og utanríkismálum almennt.Það bil er óbrúanlegt sé miðað við skoðanir Steingríms undanfarin ár.Atvinnumál VG eru sem fyrr óskilgreind,bara minni og meðalstór sprotafyrirtæki.Hvaða tegundir atvinnurekstar eru þið Guðfríður Lilja að tala um.Leikflétta ykkar VG hefur gengið upp hingað til,nú mun reyna á varnarkerfi Samf.fram að kosingum. 

Kristján Pétursson, 11.3.2007 kl. 21:39

7 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Kristján Pétursson...takk fyrir að skrifa undir nafni...með þessar skoðanir!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 11.3.2007 kl. 22:09

8 identicon

Er ég að misskilja þig vitlaust eins og maðurinn sagði,þegar ég spyr hvort þú sért ekki forseti allra skákfélaga í landinu, ekki bara Hellis? Kanske svipað og forseti Íslands væri ennþá í Alþýðubandalaginu?

Þorkell Sigurjónsson (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 22:50

9 Smámynd: Úlfar Þór Birgisson Aspar

Sæl og blessuð vertu og ég harma raunir þínar,ég lenti einusinni í svona svipuðu dæmi með bíl minn,ég var að fara frá Reykjavík heim til Akureyrar og ég átti þá forláta góðan saab 900 gls sjálfskiptur og alveg í topp formi,nema hvað á leið minni norður stoppa ég að mig mynni í hreðavatnsskála og bæti á sjálskiptinguna og einhverja oliu bætti ég á bílinn svo er auðvitað brunað af stað,var með fullann bíl af bókum,sem ég ætlaði að reyna að selja fyrir norðan,þegar ég er kominn langleiðina á heiðina sé ég afturúr hvað svo mikill reykur kemur og ég skil ekki neitt hvað sé að gerast,því ekki var hann vanur að reykja hjá mér bílinn þó ég reykti mikið á þessum tíma,nú voru góð ráð dýr og ég hægi á mér,blossar þá ekki upp framan úr húddinu eldur,ég stoppa eins fljótt og frekast er unnt,reyndi að drepa á bílnum gat það ekki allir þræðir brunnir til ösku ég hendist úr bílnum opna skottið og tæmdi alla staflana af bókunum og kom þeim í skjól síðan horfði ég á bíl minn brenna,mér skildist seinna að hann hafi brunnið út frá dagljósabúnaði,en ég gat bjargað bókunum og það skipti mestu,því þær átti ég ekki sjálfur heldur vinur minn einn sem mér þótti mikið vænt um og ekki vildi ég að hann færi illa úr þessum harmleik mínum.Gangi þér allt í haginn og Guð þig geymi.

Virðingafyllst:Úlfar B Aspar.

Úlfar Þór Birgisson Aspar, 12.3.2007 kl. 21:26

10 Smámynd: Guðlaugur Kristmundsson

Leiðinlegt að heyra með bílinn.

Guðlaugur Kristmundsson, 13.3.2007 kl. 20:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband