Laugardagur til lukku

 

Á morgun verður kosinn nýr formaður Knattspyrnusambands Íslands. Ég er spennt að sjá hvað kemur út úr því. Ég hef óbilandi trú á Höllu Gunnarsdóttur og held að hún væri frábær í starfið. Ég efast ekki um að Geir og Jafet séu báðir mjög öflugir og góðir kandídatar en Halla fær mitt atkvæði. Sorry guys.

Eins og skrifað stendur einhvers staðar: Halla er kraftmikil, dugleg, skipulögð og bjartsýn og hún er með hjartað á nákvæmlega réttum stað. Og hún er veik fyrir fótbolta.

Það er sagt að indíánar Norður-Ameríku hafi spilað eins konar fótbolta í upphafi 16. aldar. Þeir eiga að hafa spilað á söndunum við sjóinn með um einn og hálfan kílómetra á milli marka. Þetta var í þá daga þegar fólk þjáðist ekki af hreyfingarleysi. Allt að 1000 manns tóku þátt í leiknum hverju sinni, dulbúnir með grímum, málningu og skrauti. Stundum tók leikurinn tvo daga en að leik loknum var slegið upp gríðarlegum hátíðahöldum. Það fylgir ekki sögunni hvort konur máttu vera með.

Þetta var útúrdúr til gamans á föstudegi.

Laugardagur er til lukku og þá er hægt að fagna. Áfram Halla!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló Þóra Harðardóttir

Færðu líka að kjósa í Framtíðarlandinu og hjá KSÍ?  Nei, í alvöru þá væri gaman að sjá einhverjar breytingar verða hjá KSÍ, en  einhvern veginn grunar mig að Geir muni hafa þetta.

Halla hefur verið eins og ferskur andblær, - og vonandi mun sá sem vinnur kosninguna hlusta á tillögur hennar og hinna mörgu sem hafa tjáð sig um KSÍ.  

Ein bjartsýn úr Suðurkjördæmi :) 

Eygló Þóra Harðardóttir, 9.2.2007 kl. 20:18

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Mikið væri gaman að sjá hana komast að, hugsa fallega, það getur ekki sakað ;-)

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 9.2.2007 kl. 22:51

3 identicon

ætla ekkert að þykjast hafa vit á því hver mundi standa sig best í stöðu sem formaður KSÍ ... að lýsa yfir stuðningi mínum við Höllu væri þá eingöngu vegna þess að hún er ekki með typpi ... og það er ekki JAFNrétti í mínum skilningi..

en það kæmi skemmtilega á óvart ef hún ynni þetta... sérstaklega vegna þess hversu ung hún er .. held að það sé alltaf jákvætt að fá ungar manneskjur við stjór og þar með nýjar hugsjónir

Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 9.2.2007 kl. 23:09

4 Smámynd: Sveinn Hjörtur

Æ hvað ég vona að Halla verði kosin. Þá verð ég svo stoltur að segja dóttur minni, sem ætlar að verða fótboltastelpa og læknir, að nýr formaður fyrir Knattspyrnu á Íslandi sé KONA!

En, nokkuð viss að karlaklíkann vinni.... En..laugardagur er með lukku. Þó svo Halla tapi þá vann hún samt sem áður. Hún framkvæmdi.

Sveinn Hjörtur , 9.2.2007 kl. 23:20

5 Smámynd: áslaug

Stelpur, í alvöru, hver haldið þið að hafi eiginlega áhuga á þessu? Í guðs bænum, notið kraftana í eitthvað mikilvægara.

áslaug, 10.2.2007 kl. 00:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband