Miðvikudagur, 10. október 2007
Stuð á pöllunum
Ég hef alltaf verið stolt af Svandísi Svavarsdóttur. Hún er virkilega flott kona og mögnuð. En ég held að ég hafi sjaldan verið jafn stolt af henni eins og undanfarna daga og viku. Hvar værum við án hennar aðkomu í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur?
Væntanlega værum við sofandi værum blundi eins og vanalega. Sofandi af okkur umbyltingu samfélagsins, uppkaup og spillingarþræði. Deplandi syfjulegu auga eða að býsnast yfir Britney Spears - eða hvað hét hún aftur, þessi sem kom á forsíðurnar dag eftir dag um tíma, Ann Nicole Smith?
Svandís er að berjast skörulega fyrir almannahagsmunum gegn gegndarlausri ásælni og yfirgangi einkahagsmuna. Hún er vinstrigræn.
Í dag kl. 16 verður borgarstjórnarfundur í Ráðhúsinu um málefni Orkuveitunnar. Íslenskt samfélag hefur sofið af sér ótrúlegustu hluti á undanförnum árum (og þó, við höfum vaknað öðru hvoru í hneykslan yfir því að einhver leyfi sér að mótmæla - burt með slíkan lýð!). Það er tími til að mæta á pallana.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Stjórnmál
- Múrinn
- Stefnumótavefur
- Fréttir frá mínu landi
- Tilgangsleysi allra hluta
- VG Heimavöllurinn
- Ganga í VG
- Morgunpósturinn VG
- Steinunn Þóra Árnadóttir
- Steinar Harðarson
- Ólafur Arason
- Kristín Tómasdóttir
- Kári Páll Óskarsson
- Katrín Jakobsdóttir
- Emil Hjörvar Petersen
- Elías Halldór Ágústsson
- Benedikt Kristjánsson
- Álfheiður Ingadóttir
- Gestur Svavarsson
- Friðrik Atlason
- Kristján Hreinsson
- Jóhann Björnsson
- Andrea Ólafsdóttir
- Paul F. Nikolov
- Auður Lilja Erlingsdóttir
- Mireya Samper
- Ólafur Þór Gunnarsson Oddviti VG í Kópavogi
- Kolbrún Halldórsdóttir
- Ögmundur Jónasson
- Svandís Svavarsdóttir
- Árni Þór Sigurðsson
Skák
- Fréttasíða skákmanna
- Skákfélagið Hrókurinn
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Taflfélagið Hellir Félagið mitt! Sterkt og skemmtilegt!
- Kátu biskuparnir
- Skákdeild Hauka
- Taflfélag Garðarbæjar
- Skákdeild Fjölnis Vaxtarsproti í Grafarvogi
- Taflfélag Reykjavíkur Elsta skákfélag á Íslandi
- Skáksambandið
Vítt og breitt um Netheima
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Spurt er
Myndaalbúm
Bloggvinir
- hugsadu
- andreaolafs
- soley
- arnith
- almal
- hlynurh
- heida
- tulugaq
- halla-ksi
- sasudurnesjum
- truno
- bryndisisfold
- gunnarb
- dofri
- ingibjorgelsa
- bingi
- eyglohardar
- eirikurbergmann
- hux
- annabjo
- hrannarb
- bjarnihardar
- salvor
- ugla
- sms
- hrafnaspark
- agny
- olafurfa
- sveinnhj
- x-bitinn
- eyjapeyji
- palinaerna
- vefritid
- -valur-oskarsson
- kiddip
- aring
- heimsborgari
- nonniblogg
- poppoli
- feministi
- ingibjorgstefans
- margretloa
- laugatun
- freedomfries
- trukona
- ingo
- snorrason
- begga
- svartfugl
- konukind
- kolgrima
- idda
- konur
- tharfagreinir
- killerjoe
- tidarandinn
- kosningar
- id
- disill
- jensgud
- don
- saedis
- valdiher
- bardurih
- arogsid
- ktomm
- veigar
- bullarinn
- ipanama
- fletcher
- laugardalur
- partners
- joiragnars
- lauola
- kiddirokk
- heiddal
- lundi
- thelmaasdisar
- zunzilla
- hannesjonsson
- baddinn
- ingolfurasgeirjohannesson
- jonthorolafsson
- paul
- ottarfelix
- skarfur
- thjalfi
- bajo
- prakkarinn
- elinora
- palmig
- thoragud
- doriborg
- killjoker
- bleikaeldingin
- bet
- handsprengja
- eggmann
- lost
- vitinn
- thoraasg
- bitill
- vestfirdir
- olimikka
- gunz
- hallasigny
- ulfarsson
- hosmagi
- kiddih
- alfheidur
- leifurl
- bergruniris
- valgerdurhalldorsdottir
- hrafnhildurolof
- mariakr
- hildurhelgas
- sunnaros
- oskvil
- coke
- danielhaukur
- baldurkr
- ansiva
- bjarkey
- ormurormur
- perlaheim
- einarolafsson
- lks
- steinunnolina
- ellasprella
- kerchner
- kaffi
- bjargandiislandi
- reynirantonsson
- organisti
- ver-mordingjar
- hlodver
- mosi
- heidistrand
- brylli
- sverdkottur
- jam
- skallinn
- bergthora
- saethorhelgi
- gbo
- ingabesta
- larahanna
- opinbera
- valsarinn
- malacai
- laufeywaage
- unglingaskak
- isleifure
- siggiholmar
- lindagisla
- mogga
- sigvardur
- gilsneggerz
- glamor
- laufabraud
- kjarrip
- landvernd
- bestiheimi
- kristbjorg
- rjo
- hannibalskvida
- klarak
- perlaoghvolparnir
- hvitiriddarinn
- fjola
- valgeirb
- runarsv
- himmalingur
- manisvans
- gullilitli
- sigurdursig
- mal214
- leitandinn
- cakedecoideas
- hreinsamviska
- kreppan
- adhdblogg
- gerdurpalma112
- eythora
Athugasemdir
Ja ha há - við getum verið stoltar af henni Svandísi. Hún er svo málefnaleg og rökföst og talar dæmalaust góða íslensku. Og ekki spillir fyrir henni hvað hún er skemmtileg og glaðvær - það er gaman að vera með henni í kór....Ég kemst því miður ekki á pallana í dag en ætla að hlusta í útvarpinu.
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 10.10.2007 kl. 14:13
Já það er enginn vafi að hún er mögnuð kona sem á framtíðina fyrir sér í stjórnmálum. Við þurfum svona manneskju til að vekja fólk upp af værum blundi eins og þú kemst að orði Guðfríður Lilja. Verð með ykkur í anda á pöllunum!! (Einn af hinum fjölmörgu sófa mótmælendum).
Anna Karlsdóttir, 10.10.2007 kl. 14:18
hlustaði á fundinn sem var í kvöld í ráðhúsinu. Svandís er frábær stjórnmálamaður og hetja hreint og beint.
jonas (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 19:30
Mig langar að taka undir þau orð hér að undan um hana Svandísi. Við erum afskaplega lánsöm að hafa hana þarna í ljónagryfjunni. Hún kann að bíta frá sér og heldur vöku þegar réttlætið er fótum troðið. Það er barasta unun að hlusta á þessa konu og ég er mjög stolt af henni. Hún hefur svo mikla útgeislun og snerpu, ekkert tafs eða tuð heldur kemur hún beint að efninu og talar mál sem við skiljum. Hún sannarlega vekur mann af þrnirósarsvefninum sem sem svo auðvelt er að falla í. Hún er vinstri græn eins og Guðfríður bendir réttilega á.
Ásta Steingerður Geirsdóttir, 10.10.2007 kl. 19:43
Félagar!
Byltingu nú! Ekki verður lengur við það unað að auðlindum þjóðarinnar sé stolið! Fiskimiðunum, kvótanum, orkunni! Vér megum ei skjálfa hrædd þó ótal þúsund örvabroddar glitri! Nei - látum heldur sverfa til stáls, og tökum okkur Rauða herinn til fyrirmyndar og minnumst þess þegar hann rústaði Berlín og frelsaði borgina: http://youtube.com/watch?v=Arivw0qXfxQ
Byltingarvörðurinn (IP-tala skráð) 11.10.2007 kl. 06:09
Það er EKKI leiðinlegt að vera VG þessa dagana. Hm.. reyndar hefur það alltaf verið ákaflega skemmtilegt
Jenný Anna Baldursdóttir, 11.10.2007 kl. 08:41
Hvar við værum, væntalega á sama stað án þess að hafa allt þetta fjaðrafok yfir annars ágætum viðskiptum OR, sem eiga nú 10milljarða í geggjuðu fyrirtæki sem ætlar að make´a það feitt
Johnny Bravo, 11.10.2007 kl. 11:03
Ég held að fari best á að fólk spari við sig að hlaða Svandísi Svavardóttur lofi, ég er ekki viss um að hún standi undir slíku þegar upp verður staðið. Ég hlustaði á Svandísi halda ræðu sína á borgarstjórnarfundinum í gær og hreifst ekki. Mér fannst hún líkjast einna helst taugaveikluðum presti í predikunarstól. Að hún minnti mig á taugaveiklaðan klerk var þó ekki það sem vakti aðalega athygli mína, heldur hitt að ég fékk sterklega á tilfinninguna að eitthvað merkilegt sé að gerast á bak við tjöldin; eitthvað sem er svo viðkvæmt að almenningur skilur það ekki. Eða hvernig ber að túlka það, að Svandís varði nánast öllum ræðutíma sínum í að andskotast á Vilhjálmi borgarstjóra og Hauki Leóssyni, en lét Björn Inga og frjálshyggjuæskuna í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna?
Jóhannes Ragnarsson, 11.10.2007 kl. 12:23
Svandís stendur alveg undir þessu lofi. Punktur.
Laufey Ólafsdóttir, 13.10.2007 kl. 21:24
Svandís er bara stórkostleg.
Bestu kveðjurJón ÞórarinssonJón Þórarinsson (IP-tala skráð) 23.10.2007 kl. 04:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.