Í hópi hinna staðföstu

Snemma í morgun ákvað ég að hér eftir ætlaði ég bara að drekka einn kaffibolla á dag. Svo ætla ég í stað súkkulaðis að borða gulrætur. Eða þurrkað mangó eða peru eða epli. Hollustan í fyrirrúmi, heilsuátak.

Nú er klukkan 13.15 og ég er búin að breyta þessu þannig að kaffibollarnir eru orðnir tveir á dag. Allavega næstu 3 daga - aðlögunartími. Súkkulaðiátakið er um það bil það þúsundasta í röðinni á liðnum árum svo ég ætla ekki að veita undantekningu frá því fyrr en í fyrsta lagi um kl. 16.00.

Í svona málum dugar ekkert annað en að vera staðföst.  Hélduð þið virkilega að ég ætlaði að brjóta súkkulaðibindindið fyrir klukkan 4 í dag?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snorri Bergz

En kíkirðu ekki bara á lokadag Alþjóðaboðsmótið í TR í dag, byrjar kl. 17.00. Birna er með veislu! Menn hafa nú frestað heilsuátaki um einn dag af minna tilefni!

Snorri Bergz, 25.9.2007 kl. 13:40

2 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Sýnir færslan þín ekki að þið eruð ekki eins staðföst og þið þykist vera?

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 25.9.2007 kl. 13:45

3 identicon

Gísli, þið hver ? Er Guðfríður Lilja ekki að tala um sjálfa sig ? Má hún það ekki ? Flott hjá Guðfríður Lilja, þú ert á réttri leið og svona komment eins og hjá Gísla gera það að verkum að ég nenni ekki að hafa athugasemdirnar mínar opnar. Maður missir móðin á að lesa svona athugasemdir sem eru algjörlega út úr kú við því sem maður er að skrifa. Svona hálfgerð tátalógía.

Gangi þér vel og mér líst betur á kaffihófdrykkjuna en útrásina. Ekki fara!!

Jónína Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 15:58

4 Smámynd: arnar valgeirsson

félagi minn sagði mér einmitt að alltaf á kvöldin þegar hann langar í nammi, þá segði hann við sjálfan sig að ef hann borðaði ekkert í kvöld mætti hann borða helling af nammi í fyrramálið.

þar sem mann langar ekki í nammi nývaknaður þá gengur þetta fínt.

hinsvegar er ágætisregla að borða ekki nammi fyrir klukkan fjögur sko. svo þarftu nú ekki að fara alveg á hliðina þó þú fáir þér súkkulaðimola, ekki eins og átaks sé þörf.

kannski gísli sé að tala um skákfólk? misstaðfast fólk....

arnar valgeirsson, 25.9.2007 kl. 16:55

5 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Getur einhver upplýst um hvað tátalogía er?

"By the vei" Þið hér stendur fyrir VG

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 25.9.2007 kl. 17:59

6 identicon

Hvað kemur VG súkkulaðibindindi Lilju við? Eru sumir ekki að missa sig í paranoiunni hérna (paranoia merkir ofsóknarbrjálæði, fyrir þá sem ekkert vita)?

Sverrir (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 18:42

7 identicon

Gísli sýnir að hann hefur mikinn áhuga á VG er að öllum líkindum latent VGari ójá Gísli latent þýðir laumu thí hí

Lilja þú ert alltaf flottust líka útkámuð af súkkulaði

Maggan

Margrét (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 20:42

8 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Gott með þig (GLG) það eru nefnilega ekki allir sem vilja borða súkkulaði, fyrir 4 

Kjartan Pálmarsson, 26.9.2007 kl. 00:22

9 Smámynd: Karl Tómasson

Er Gé Bé með VaffGé á heilanum eins og svo margir aðrir???

Haustið er tími sem margir nota til að slappa af. 

Karl Tómasson, 26.9.2007 kl. 01:49

10 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Gott að heyra að fleiri en ég eru í súkkulaðibindindi og kaffiaðhaldi. Mér hefur tekist að vera súkkulaðilaus í ca. 14 daga. Borðaði smá súkkulaðiköku í afmælisveislu sonar míns, en ég var búin að ákveða það fyrirfram. Gangi þér vel. Manni líður mun betur sykurlausum!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 26.9.2007 kl. 08:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband