Lýðræði til sölu! Kostar eina..?

Heyrst hefur að Alcan sé sérstakur styrktaraðili komandi kosninga um stækkun álversins í Straumsvík. Á fallega lituðum kjörseðlum komi fram lógó fyrirtækisins og kjósendur fái að gjöf heiðbláan kúlupenna sem skrifi í regnbogans litum og setji sjálfkrafa x við réttan stað. Krakkar í fylgd fullorðinna fá sleikjó og ís. Sameinaðir kórar landsins taki syngjandi á móti gestum. Allir brosa.

Tja, þetta var nú bara einhver kjaftasaga sem ég heyrði. Veit ekki hvort hún er sönn.

En sagan segir líka að það sé jafnvel búist við að Alcan, Norsk Hydro og Hvalur 9 taki höndum saman um að vera sérstakir kostunaraðilar Alþingiskosninganna í vor. Nýfrjálshyggjumönnum í öllum flokkum svíður það sárt að sameiginlegir sjóðir landsmanna þurfi að punga út miljónum til þess eins að fólkið í landinu fái að kjósa. Ólíðandi vöntun á "hf." blasi við á enn einu sviði samfélagsins og eins gott að bæta úr því hið fyrsta.

"Einkaaðilar" framkvæma víst kosningar og pólitíska umræðu með mun skilvirkari, ódýrari og betri hætti en aðrir. "Einkaaðilar" framkvæma allt með mun skilvirkari, ódýrari og betri hætti en aðrir. Meira að segja regnvatnið af himnum í Suður-Ameríku er skilvirkara í eign "einkaaðila". Svo segja í það minnsta nýju alheimstrúarbrögðin. Þessir "einkaaðilar" eru oftar en ekki risavaxnar alþjóðlegar fyrirtækjasamsteypur sem hafa það eitt að markmiði að græða sem mest á sem skemmstum tíma, sama hvað á vegi þeirra verður. Fyrir "hluthafana". Hverjir ætli það séu? Fólkið í landinu?

Stóru fjármagnsflokkarnir hafa reyndar um annað að hugsa akkúrat núna en hvaða lógó prýði kjörseðil kosninganna í vor. Heyrst hefur að þeir sem hugsa stórt og klókt hafi nefnilega verið að keppast við að safna stórum fúlgum í kosningasjóði áður en hámarkið um 300 þúsund per gjöf tekur gildi skv. nýsamþykktum lögum. Stóru fúlgurnar munu væntanlega streyma fyrir vit okkar fólksins í landinu í formi auglýsinga og fleiri sleikjóa í vor. Allir brosa.

Sniðugt.

Afturhaldssömum vinstrigræningjum sem hafa eitthvað við þetta fyrirkomulag allt að athuga eru vinsamlega beðnir um að halda sig til hlés. Óþolandifriðarsinnagræningjar eru bara fyrir lýðræðinu og á móti öllu. Já, á móti öllu! Afturhaldsseggir! Vilja senda okkur öll aftur í torfkofana að tína fjallagrös! Vita ekki hvað það er að vera nýrík þjóð á meðal þjóða.

Framsækið metnaðarfullt land hefur ekkert með slíkt afturhald að gera. Segja óháðir álitsgjafar. Nýju fínu auglýsingarnar hjá hinum framsæknu framfarasinnum munu sanna það. Bíðið bara. Í vor munu allir verða talsmenn umhverfis, barna, jafnréttis, menntunar, réttlætis, rannsókna, frelsis, framfara, velferðar, velgengni, vaxtar, lýðræðis... ogsvoframvegisogsvoframvegis. Og allir munu brosa.

Lýðræði til sölu! Kostar...?!

 

Þessi pistill var í boði mbl.blog.is.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Agný

Mér hefur nú virst vera ansi afstætt hvað "lýð"ræði er.. Ef að það er samskonar "lýð"ræði og hann Búskur boðar með vopnavaldi..þá býð ég ekki mikið í það.. þýðir ekki orðið "lýðræði" að "lýðurinn" sama sem hinn almenni borgari ráði....

Agný, 3.1.2007 kl. 04:19

2 Smámynd: Ólafur fannberg

lýðræði hvað er það ?

Ólafur fannberg, 3.1.2007 kl. 08:18

3 Smámynd: Alma Lísa Jóhannsdóttir

Dæs, ég er orðin orðlaus og veit í raun ekki hvaða viðbrögð ég á að sýna vegna Alcan gjafa dagsins. Ekki í fyrsta sinn í þessu máli og er ég farin að búast við öllu og geri því ráð fyrir að mér verði haldið gapandi fram að kosningum í þessu máli, og eflaust lengur....

Alma Lísa Jóhannsdóttir, 3.1.2007 kl. 20:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband