Laugardagur, 30. desember 2006
Skákað fyrir áramót
Ef eitthvað kemur mér alltaf í gott skap þá er það að vera áhorfandi á barnaskákmóti. Það er eitthvað svo magnað að fá að fylgjast með leiftrandi hugarflugi og leikgleði barna.
Um jól og áramót eru jafnan haldin ýmis skákmót, en eitt er það mót sem stendur iðulega upp úr á þessum tíma árs: hið árlega Jólapakkamót Taflfélagsins Hellis. Um þessi jól mættu rúmlega 130 krakkar til að tefla í Ráðhúsi Reykjavíkur. Það var gefandi og gaman að fá að fylgjast með handbragðinu hjá ungu kynslóðinni.
Í dag er ég hins vegar að fara á skákmót þar sem fólk á öllum aldri mætir til að tefla til heiðurs Friðrik Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga. Mótið er orðið að eins konar jólahefð og er haldið árlega í aðalútibúi Landsbankans í Austurstræti. Mótið er um leið Hraðskákmót Íslands og ýmsir af bestu skákmeisturum landsins mæta til leiks. Það tifa aðeins 5 mínútur á klukkunni fyrir hverja skák og því ríður á að vera snar í snúningum, taka skjótar ákvarðanir og leika leifturhratt... Ég ætla að gerast svo djörf að vera ekki einungis einn af skipuleggjendum heldur ætla að þjálfa aðeins fingur og heilasellur og vera með.
Mótið byrjar klukkan 13 og ykkur er öllum velkomið að koma að fylgjast með! Í amstri dagsins er fátt betra en að sitjast niður og tefla...
Við látum aðrar skákir bíða á meðan, refskákir sem hinar.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Stjórnmál
- Múrinn
- Stefnumótavefur
- Fréttir frá mínu landi
- Tilgangsleysi allra hluta
- VG Heimavöllurinn
- Ganga í VG
- Morgunpósturinn VG
- Steinunn Þóra Árnadóttir
- Steinar Harðarson
- Ólafur Arason
- Kristín Tómasdóttir
- Kári Páll Óskarsson
- Katrín Jakobsdóttir
- Emil Hjörvar Petersen
- Elías Halldór Ágústsson
- Benedikt Kristjánsson
- Álfheiður Ingadóttir
- Gestur Svavarsson
- Friðrik Atlason
- Kristján Hreinsson
- Jóhann Björnsson
- Andrea Ólafsdóttir
- Paul F. Nikolov
- Auður Lilja Erlingsdóttir
- Mireya Samper
- Ólafur Þór Gunnarsson Oddviti VG í Kópavogi
- Kolbrún Halldórsdóttir
- Ögmundur Jónasson
- Svandís Svavarsdóttir
- Árni Þór Sigurðsson
Skák
- Fréttasíða skákmanna
- Skákfélagið Hrókurinn
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Taflfélagið Hellir Félagið mitt! Sterkt og skemmtilegt!
- Kátu biskuparnir
- Skákdeild Hauka
- Taflfélag Garðarbæjar
- Skákdeild Fjölnis Vaxtarsproti í Grafarvogi
- Taflfélag Reykjavíkur Elsta skákfélag á Íslandi
- Skáksambandið
Vítt og breitt um Netheima
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Spurt er
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
hugsadu
-
andreaolafs
-
soley
-
arnith
-
almal
-
hlynurh
-
heida
-
tulugaq
-
halla-ksi
-
sasudurnesjum
-
truno
-
bryndisisfold
-
gunnarb
-
dofri
-
ingibjorgelsa
-
bingi
-
eyglohardar
-
eirikurbergmann
-
hux
-
annabjo
-
hrannarb
-
bjarnihardar
-
salvor
-
ugla
-
sms
-
hrafnaspark
-
agny
-
olafurfa
-
sveinnhj
-
x-bitinn
-
eyjapeyji
-
palinaerna
-
vefritid
-
-valur-oskarsson
-
kiddip
-
aring
-
heimsborgari
-
nonniblogg
-
poppoli
-
feministi
-
ingibjorgstefans
-
margretloa
-
laugatun
-
freedomfries
-
trukona
-
ingo
-
snorrason
-
begga
-
svartfugl
-
konukind
-
kolgrima
-
idda
-
konur
-
tharfagreinir
-
killerjoe
-
tidarandinn
-
kosningar
-
id
-
disill
-
jensgud
-
don
-
saedis
-
valdiher
-
bardurih
-
arogsid
-
ktomm
-
veigar
-
bullarinn
-
ipanama
-
fletcher
-
laugardalur
-
partners
-
joiragnars
-
lauola
-
kiddirokk
-
heiddal
-
lundi
-
thelmaasdisar
-
zunzilla
-
hannesjonsson
-
baddinn
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jonthorolafsson
-
paul
-
ottarfelix
-
skarfur
-
thjalfi
-
bajo
-
prakkarinn
-
elinora
-
palmig
-
thoragud
-
doriborg
-
killjoker
-
bleikaeldingin
-
bet
-
handsprengja
-
eggmann
-
lost
-
vitinn
-
thoraasg
-
bitill
-
vestfirdir
-
olimikka
-
gunz
-
hallasigny
-
ulfarsson
-
hosmagi
-
kiddih
-
alfheidur
-
leifurl
-
bergruniris
-
valgerdurhalldorsdottir
-
hrafnhildurolof
-
mariakr
-
hildurhelgas
-
sunnaros
-
oskvil
-
coke
-
danielhaukur
-
baldurkr
-
ansiva
-
bjarkey
-
ormurormur
-
perlaheim
-
einarolafsson
-
lks
-
steinunnolina
-
ellasprella
-
kerchner
-
kaffi
-
bjargandiislandi
-
reynirantonsson
-
organisti
-
ver-mordingjar
-
hlodver
-
mosi
-
heidistrand
-
brylli
-
sverdkottur
-
jam
-
skallinn
-
bergthora
-
saethorhelgi
-
gbo
-
ingabesta
-
larahanna
-
opinbera
-
valsarinn
-
malacai
-
laufeywaage
-
unglingaskak
-
isleifure
-
siggiholmar
-
lindagisla
-
mogga
-
sigvardur
-
gilsneggerz
-
glamor
-
laufabraud
-
kjarrip
-
landvernd
-
bestiheimi
-
kristbjorg
-
rjo
-
hannibalskvida
-
klarak
-
perlaoghvolparnir
-
hvitiriddarinn
-
fjola
-
valgeirb
-
runarsv
-
himmalingur
-
manisvans
-
gullilitli
-
sigurdursig
-
mal214
-
leitandinn
-
cakedecoideas
-
hreinsamviska
-
kreppan
-
adhdblogg
-
gerdurpalma112
-
eythora
Athugasemdir
Sæl Lilja og takk fyrir bloggið!
Hvað eru yngstu börnin gömul? Á 3 ára strák (verður bráðum 4) og held að skák geri honum svo gott en hvenær er hægt að senda hann í þjálfun?
Kær kveðja,
Anna
Anna BM (IP-tala skráð) 30.12.2006 kl. 22:05
Karl Gauti Hjaltason (IP-tala skráð) 31.12.2006 kl. 15:32
Eitt af undrum veraldar er sagt um Ísland. Og hvers vegna skyldi það nú vera. Jú, ennþá er land okkar(ennþá)tiltölulega í lagi vegna mengunar,þó atlaga mikil hafi verið í gangi fram á þennan dag. Hafnfirðingar kjósa um frekari álframleiðslu eftir áramót,eða hvort nóg sé komið í bili. Sem innlegg segi ég. Sonur minn er nýkominn frá námi við háskóla í SeulS-Kóreu. Mengun var slík að illa sást til sólar og sýn var mjög óskír innan borgarmarka. Viljum við, að börn barnabörn og barnabarnabörn okkar taki við slíku Íslandi? Nei segi ég. Við Guðfríður Lilja eigum það sameiginlegt að standa á móti slíkri þróun. Eldri sonur minn býr hér í Eyjum og hefur verið viðloðandi skák og skáklíf frá blautu barnsbeini,og að mínu mati virkjar ekkert betur hugann. Örlítið um fótbolta. Þar sem ég talaði til Hafnfirðina áðan,segi ég þetta til viðbótar. ÍBV féll í haust um deild og ég vegarlaus í bili. Hefi ákveðið að standa með FH til næsta hausts,ekki síst þar sem við eigum tvo góða fulltrúa í FH, þá Tryggva og Venna. Í lokin óska ég Guðfríði Lilju góðs gengis á kosningaári hjá VG og vona að Hafnfirðingar og aðrir Suðurnesjumenn standi þétt að baki hennar. Trúum því að Guðfríður Lilja komi til með að gera Ísland eitt af undrum veraldar. Áramótakveðja.
Þorkell Sigurjónsson. (IP-tala skráð) 31.12.2006 kl. 17:36
Takk fyrir þetta Karl Gauti, en við búum í Kópavogi...svo ég fer á stúfana og athuga málið hér!
Gleðilegt ár!
Anna
Anna BM (IP-tala skráð) 1.1.2007 kl. 16:26
Karl Gauti Hjaltason (IP-tala skráð) 2.1.2007 kl. 08:15
Kæru félagar - kunnugir sem ókunnugir!
Takk fyrir góðar óskir frá ykkur öllum. Ég ætla að byrja á því að svara aðeins fyrirspurnum Önnu um skákkennslu fyrir litla drenginn sinn. Með tímanum kemst ég svo vonandi til þess að svara fleiri og viðameiri athugasemdum!
Ég tek undir með þér Anna að það mun gera stráknum þínum mjög gott að læra að tefla! Það er ótrúlega þroskandi iðja fyrir börn - á öllum aldri. Þar eð hann er enn svo ungur (3ja að verða 4ja) mundi ég mæla með því að þið mæðgin byrjið á því að leika ykkur með taflmennina á borðinu, án þess að hafa nokkrar áhyggjur af því hvernig þeir labba eða stökkva. Það getur verið sniðugt að byrja bara að tefla með peðum, láta þau labba áfram á borðinu og kenna honum einfaldlega til að byrja með að þið skipist á að eiga leik. Krökkum finnst oft mjög spennandi að peð geti orðið að drottningum svo ef þú leyfir honum að labba með peðið alla leið upp í borð við og við og það galdrast yfir í drottningu þá finnst honum ábyggilega gaman...! Aðalmálið er að leikgleðin sé í fyrirrúmi og að smám saman komi fleiri menn inn á borðið og þeirra mismunandi eiginleikar líti dagsins ljós og venjist. Það er hins vegar góð regla að hafa bara fáa menn á borðinu í byrjun hjá svona ungum krökkum. Ég get líka tekið hann í nokkra skáktíma með þér ef þú hefur áhuga á. Þegar hann er orðinn 5 ára er hægt að senda hann í Skákskóla Íslands á byrjendanámskeið - ég mundi hins vegar ekki mæla með því fyrr en hann er orðinn 5 ára, einfaldlega upp á félagslegan þroska og að honum geti liðið sem best í hópnum (flestir krakkar í byrjendahóp eru amk orðnir 6 ára). Þegar hann kann mannganginn og treystir sér til að tefla við ókunnuga þegar fram í sækir er svo hægt að benda á barna- og unglingaæfingar hjá góðum taflfélögum á höfuðborgarsvæðinu (sem og að sjálfsögðu í Vestmannaeyjum, þar sem félagið er með frábært barna- og unglingastarf, en þið búið ekki þar!). Hringdu í mig hvenær sem er til að tala meira um þetta eða sendu línu á netfangið mitt - sími 848 0100 / liljagretars@gmail.com
Kveðja,
Lilja
Guðfríður Lilja, 6.1.2007 kl. 14:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.