Gríman fellur

"Við munum ganga grímulausir inn í þessa umræðu" segir Hrannar Pétursson upplýsingafulltrúi Alcan í Straumsvík í Blaðinu í morgun. Hvað á maðurinn við?

Þau hin grímulausu munu að sögn "kappkosta að upplýsa fólk um það hvernig við sjáum þetta fyrir okkur" - stækkun álversins í Straumsvík.

Þær upplýsingar um hvernig þau sjá þetta fyrir sér felast á þessu stigi málsins í gjöf með Bó Halldórs og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Alcan keypti átta þúsund geisladiska og dreifði þeim innpökkuðum i álpappír til allra heimila í Hafnarfirði. Svona sem málefnalegt innlegg í umræðuna um hag bæjarbúa til framtíðar.

Ég er væntanlega ekki sú eina sem á erfitt með að skilja hvernig Bó og Sinfóníuhljómsveit Íslands geta innpökkuð í ál verið boðberar málefnalegrar umræðu um framtíð Hafnarfjarðar - eða náttúrugersema við Þjórsá. En ekkert er nýtt undir sólinni.

Hjá sumum væri þetta hins vegar ekki titlað sem gjöf, hvað þá hluti af ákalli um málefnalega umræðu, heldur eitthvað allt annað. 

Það er ef til vill við hæfi að spyrja Alcan nánar út í grímuleysið. Er gríman fallin?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, gríman er fallin! Þessi skyndilega gjafmildi Alcans er augljóst dæmi um, að fyrirtækið er að reyna að koma sér í mjúkinn hjá Hafnfirðingum, treystir kannski á það, að gjafir og glys geti riðið baggamuninn til að í þeirri baráttu að fá Hafnfirðinga til að leggja á sig nýtt mengunarok. Ætli kynningarfulltrúinn hafi svo ekki það hlutverk að fegra málið svo sem framast er unnt? -- Þakka þér, Guðfríður Lilja, fyrir að ganga í þann hóp sem vekur athygli á þessu máli.

Jón Valur Jensson, 28.12.2006 kl. 12:44

2 identicon

Tja, mér finnst nú skrítin gríman sem sett er upp í langri og rándýrri hátíðarsjónvarpsauglýsingu frá fyrirtækinu. Einkennileg mynd af hamingjusömu og hraustu fólki hjólandi um með appelsínugula hjálma. Finnst hæpið að þetta hafi verið falin myndavél á hefðbundnum vinnudegi...

Sóley Tómasdóttir (IP-tala skráð) 28.12.2006 kl. 13:08

3 identicon

Falin myndavél?
Er eitthver auglýsing fyrir fyrirtæki eins og falin myndavél?
Hinsvegar er fólk almennt séð nokkuð hresst að vinnu í Álverinu svona ef þú varst að velta því fyrir þér.

Annars varðandi að gefa ykkur geisladiskana, þá er þetta varla í fyrsta skipti sem svona gjöf hefur pólitískan tilgang, það er hinsvegar ykkar að láta hana hafa áhrif á ykkur eða ekki.
Fyrir mér er þetta kannski meira að opna augun fyrir því að stækkun álversins er kannski ekki bara vond, kannski væri gott að kynna sér málið frá báðum hliðum.
Nei maður spyr sig.

starfsmaður í álverinu (IP-tala skráð) 28.12.2006 kl. 18:25

4 identicon

Ég er einn hinn "lánsömu" hafnfirðinga sem fékk umræddan disk inn um lúguna hjá mér.Þó að Bó sé ekki í neinu uppáhaldi hjá mér ætla ég mér nú að halda honum.Skoðun mín á stækkun álversins hefur hins vegar ekkert breyst og ég efa það stórlega að svona sending frá Alcan fái hafnfirðinga almennt til þess að styðja fyrirhugaða framkvæmd.Þrátt fyrir að við hafnfirðingar séum samkvæmd alkunnum bröndurum taldir vitlausari en aðrir landsmenn þá getum við alveg borið saman kosti og galla fyrirhugaðra framkvæmda og tekið vitsmunalega ákvörðun út frá því.Fyrir mér liggur það alveg ljóst fyrir hvort vegur þyngra á metunum.

Sigurður Eðvaldsson (IP-tala skráð) 29.12.2006 kl. 00:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband