Miðvikudagur, 27. desember 2006
Heppnaðist vel

Arnold Schwarzenegger á mynd frá árinu 1998. Reuters
"Kvikmyndaleikarinn og ríkisstjórinn Arnold Schwarzenegger gekkst undir skurðaðgerð í dag til að lagfæra fótbrot. Að sögn lækna gekk aðgerðin vel en Schwarzenegger verður undir eftirliti lækna á sjúkrahúsi í Los Angeles í þrjá daga."
Ég las þetta í frétt í gærkvöldi þegar ég braut fjölmiðlabann jólanna.
Er fólk svo að kvarta undan því að það vanti jákvæðar fréttir af heimsviðburðum?
Ég stóð annars í þeirri meiningu að Schwarzeneggerar heimsins brotnuðu ekki. Hvorki á fæti né annars staðar. Þess vegna er hjúkk einu réttu viðbrögðin. Hjúkk að aðgerðin heppnaðist vel.
Annars hefði mátt bæta við fréttina um fótbrotið á batavegi lítilli setningu. Eins og til dæmis þessari:
"Þess má geta í forbifarten að hin fótbrotna Hollywoodstjarna á batavegi, Terminator, Innflytjandi og Repúblikani, hefur lagt fram margfalt framsæknari og róttækari tillögur til bóta í umhverfismálum heldur en íslenskum ráðamönnum hefur hingað til dottið í hug að gera."
Mér hefði fundist pínu leiðinlegt að lesa þessa klausu en pínu áhugavert. Pínu pínlegt en satt. Það hefði verið hægt að bæta við ýmsu fleiru en mér finnst það svo leiðinlegt á jólunum að ég ætla ekki að gera það. Það á að vera gaman á jólunum. Jákvæðni allt um kring. Við skulum þess vegna bara halda okkur við fréttina um aðgerðina sem heppnaðist vel.
Ég er líka með hugann meira við aðra kvikmyndastjörnu þessa dagana.
Nefnilega þessa hér:

Ida Nørregaard (født i 1929)
Mér finnst hún æði. Ég var búin að leggja til við Steinu að við færum með sjónvarpið upp á háaloft yfir hátíðarnar þar til á gamlárskvöld, en svo nenntum við því ekki og í gærkvöldi var ég mjög fegin. Ég flatmagaði og naut þess að horfa á Krónikuna eftir langt hlé. Ég er yfir mig ánægð yfir því að útlit sé fyrir að Ida sé að losa sig við forpokaða leiðindapúkann Sören prófessor og vona bara að hún kýli á það. Svo vona ég líka að hún og Palle nái saman. Ég verð virkilega spæld ef það endar ekki þannig. Jafnvel þótt Palle hefði verið ferlega lélegur að neita Evrópusambandsskeptíkerum um lán hjá bankanum. Skamm Palle.

Athugasemdir
kvitt
Ólafur fannberg, 27.12.2006 kl. 14:57
Já Ida og Palle eiga að vera saman, og skrítið að Sören komst upp í hjá Idu? En þetta eru bestu þættir sjónvarpsins.
anna benkovic (IP-tala skráð) 27.12.2006 kl. 15:13
Þetta eru sérlega skemmtilegir þættir - verst að aðeins einn þáttur er eftir. Og þau hljóta að ná saman Ida (sem mér finnst alltaf svo lík Áslaugu Dóru Eyjólfsdóttur sem var í sjónvarpinu í den) og Palle. Svo finnst mér líka skemmtilegt að þetta fólk er jafnaldrar mömmu sem er fædd 1926 og núna er akkúrat verið að fjalla um tíma sem ég man - fædd 1958
Kristín Björg (IP-tala skráð) 30.12.2006 kl. 01:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.