Laugardagur, 23. desember 2006
Sæt í bleiku
Já, þetta er jólabókin mín í ár.
Pen vísbending fyrir þau ykkar sem enn eru ekki búin að kaupa handa mér gjöf. Ef þið eruð mörg sem eigið það eftir og viljið komast hjá því að ég fái tíu eintök af Jólaljóðum - eitt eintak er hugsanlega alveg nóg - þá hef ég heldur ekkert á móti þessari hér. Eða þessari hér.
Er þegar búin að benda á aðrar bækur hér á slóðinni sem mér líst vel á, kann ekki við að endurtaka það. Önnur er um jökulvatn og ást og hin um geðveiki, enn önnur um velferðarsamfélag á tímamótum. Ýmsar fleiri líka sem koma til greina.
Ef þetta er ekki nóg þá finnst mér þessi stúlka hér hrein dásemd.
Finnst ykkur ég flínk að setja inn linka?! Er að æfa mig.
Annars skuluð þið bara alveg sleppa því að gefa mér jólagjöf. Mig vantar ekki neitt. En þið megið gefa öllum strákum sem þið þekkið inngöngu í Karlahóp Femínistafélags Íslands og láta NEI-gegn-nauðgunum-bol fylgja með (fæst í Dogma, Laugavegi, ágóði rennur til frekari aðgerða). Já, ég er að auglýsa bolina, vil að þeir dreifist út um allar trissur.
Ættingi minn einn náinn gefur annars alltaf bara staðfestingu á að lagt hafi verið inn til þessa eða hins góðgerðamáls.
![]() | ![]() |
Ég var stödd í nátt- og nærfatabúð í gær að bíða eftir afgreiðslustúlkunni. Hún var að afgreiða ungan mann og sýna honum hinar og þessar gerðir af brjóstahöldurum. Hann var ferlega lengi að drolla við þetta allt saman, skoðaði vandlega hvert einasta par og þurfti hjálp til, gat ekki ákveðið neitt. Á einum tímapunkti heyrði ég hann svo segja "Jú, þetta er allt í lagi sko. En áttu kannski eitthvað í bleiku? Mér finnst hún svo sæt í bleiku." Óþolinmæðin í mér rauk burt og ég kaus hann umsvifalaust mesta krúttið á staðnum. Hann þorði ekki alveg en þorði samt, lét sig hafa það að lokum að spyrja um það sem hann raunverulega langaði í. Fyrir hana sem er svo sæt í bleiku...
Svei mér þá ef þið megið ekki bara sleppa því alveg að gefa mér jólagjafir OG afmælisgjafir (á afmæli snemma í janúar...) ef þið bara takið stökkið og kjósið rétt í vor. X við grænu kvenfrelsis-jafnaðar-velferðar-byltinguna. Beygja til vinstri. Taka stefnuna til betri framtíðar, í átt að réttlæti.
Mæting 12. maí nk. Sjáumst!
Athugasemdir
Þessi hér er líka æði! Frábær sjálfshjálparbók í ósanngjörnu samfélagi. Gleðileg jól og farsælt komandi kosningaár. Hlakka til að breyta heiminum með þér! Kv. Sóley
Sóley Tómasdóttir (IP-tala skráð) 23.12.2006 kl. 11:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.