Sól hækkar

 mynd eftir robba

Ég er hvorki lítil né smágerð en mér tókst einhvern veginn að fjúka inn í Hallgrímskirkju í kvöld. Sem betur fer hélt ljúfur maður hurðinni opinni upp á gátt svo mér tókst að lokum að fjúka mér inn - í stað þess að velkjast um eins og strá úti á stétt. 

Inni beið hugljúf stund. Fjöldi fólks fyllti kirkjuna á Vetrarsólstöðum Náttúruvaktarinnar. 

Guðrún Ásmundsdóttir las á áhrifamikinn hátt úr ljóðum og þýðingum Matthíasar Jochumssonar. "Og andinn mig hreif upp á háfjallatind..." orti Matthías árið 1870, uppi á Esjutindi!

Viðar Hreinsson velti því fyrir sér hvort hið moldríka samfélag væri að gleyma þeirri mold sem það væri sprottið úr. Hann vitnaði í ljóð Hannesar Péturssonar þar sem spurt er hvort við eigum landið skilið...

Pétur Gunnarsson kallaði eftir róttækri viðhorfsbreytingu og vitnaði í Kjarval - sem sagði náttúruna hina miklu kirkju alheimsins, Guðshús okkar tíma...

Séra Birgir Ásgeirsson fjallaði um ríki guðs og ríki mannsins og hvernig verkefni mannfólksins sé að vinna voninni styrk og bera kærleikanum vitni... 

Ellen Kristjánsdóttir söng eins og engill, Þórunn Lárusdóttir, systir hennar og maður sömuleiðis (!), Bryndís Halla, Áshildur og Auður fundu fagra hljóma og það sama gerðu aðrir - Sigríður Eyþórs, Jóhann Friðgeir, Egill og fleiri. Megas og Súkkat gengu fylktu liði inn kirkjugólfið við fögnuð áheyrenda - og minntu okkur á að hold er mold, hverju sem maður klæðist. Sólveig Arnarsdóttir leikkona pakkaði þessu öllu inn með glæsibrag...

Þetta var miklu betra kvöld en það kann að hljóma í minni upptalningu! Það var eitthvað verulega gott í loftinu. Sessunautur minn í flíspeysu og kuldaskóm var með tárvot augu allan tímann.

Sólin er aftur byrjuð að hækka á lofti og tími vonarinnar að styrkjast.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

kvitt

Ólafur fannberg, 22.12.2006 kl. 08:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband