Meðvitaðir jólasveinar

Gluggagaegir 

Jólasveinarnir okkar eru orðnir róttækir umbótasinnar og eldheitir femínistar. Kíkið á þá sem komnir eru til byggða hér.

En hvers vegna liggur tíundi jólasveinninn á gægjum? Honum er lýst svo í íslenskum heimildum:

"Hann er vanur að laumast að gluggum og gægjast inn. Oft girnist hann þá eitthvað sem hann sér og reynir seinna að komast yfir það. Náskyldur honum er sveinn sem í gömlum heimildum er nefnur Gangagægir og hefur trúlega gægst inn í bæjargöngin í svipuðum erindagjörðum."

Það vantar sem sagt enn örlítið upp á meðvitaða og femíniska uppeldið hjá Gluggagægi. En batnandi sveinum er best að lifa...

Það er hins vegar umsvifamikill dagur framundan hjá mér. Ég ætla að fara í jólabúðina mína, Bókina - Fornbókaverslun Braga Kristjónssonar á horni Hverfisgötu og Klapparstígs, og dunda mér þar í nokkra klukkutíma á höttunum eftir jólagjöfum. Þeir feðgar Bragi og Ari eru uppáhalds jólasveinarnir mínir - og flottustu verzlunareigendur bæjarins. Luma á ótrúlegustu dýrgripum og skemmtan.

Á Þorláksmessu ætla ég svo að heimsækja þá aftur með fríðu föruneyti. Þá er nefnilega aldrei að vita nema við fáum smá hressingu til að styrkja beinin.

Læt þetta nægja í bili. Það er allt á fullu...

 

Kanínan snjalla og þróski eiginmaðurinn

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

margt er hægt að finna í fornbókaverslunum...takk fyrir innlitið. Og alltaf gaman að vera fyrstur i röðinni (fyrsti bloggvinurinn) Verðum að taka skák einhverntimann hehehe..Gleðileg jól..

Ólafur fannberg, 21.12.2006 kl. 08:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband