Markaðsgildi fæðingarinnar...

Markaðssetning JesúbarnsinsCopyright Gospel Communications International, Inc - www.reverendfun.com

"Mér þykir leitt að þurfa að biðja ykkur um að fara annað, en markaðs-ráðgjafar gistihússins segja okkur að það sé einungis tímaspursmál hvenær tréð hérna á bak við mig trekki enn betur að en sonur ykkar".

Er að hugsa um að byrja bloggin mín á næstunni með smá mynd, að gamni. Krydda aðeins jólatilveruna í bloggheimum Lilju.

Var annars að horfa á Kastljósið. Kastljós sem vitnar í Kompás. Viðtal við Guðmund í Byrginu, Magnús Skúlason lækni, Jóhann hjá Kompás og fleiri. Alvarlegar ásakanir ganga á víxl út og suður og um allar trissur á opinberum vettvangi í sirkus fjölmiðlanna. Mjög alvarlegar ásakanir.

Djarfari dramatík, æstari uppgjör, grófari ásakanir, persónulegri ágreiningur, aðgangsharðari fréttamennska. Kynlíf og peningar með í leik. Framhald í næsta þætti. Hver vill missa af slíkum "fréttaskýringaþáttum"?

En erum við sem eftir sitjum raunverulega einhverju nær? Sitjum við eftir víðsýnni, vitrari manneskjur, betur upplýstar, færari til að taka afstöðu til samtímans í kringum okkur? Erum við betur í stakk búnar til að greina gerendur frá fórnarlömbum, staðreyndir frá blekkingum? Eða er þetta allt sett upp á eins dramatískt svið og hægt er, klippt og skorið, til að fá okkur til að halda áfram að horfa? Hmmm. Harðnandi samkeppni fjölmiðla getur af sér... hvað?! Upplýstari, ábyrgari 'þegna' í lýðræðisríki? Eða betri áhorfendur að Leiðarljósi - Guiding Light?

Í næstu viku verðum við annars án efa búin að gleyma því sem við sáum og heyrðum í þessari viku. Við lifum á "einnota" tímum. Öskuhaugar gleymskunnar koma sér vel á tímum þar sem nýjustu fréttir eru eldheit söluvara. Ef maður leyfir sér að tala um málefni "gærdagsins" er maður gróflega eftir á - ekki viðræðuhæf. Kapphlaup á öllum vígstöðvum. Hlauptu frétt, hlauptu!

En nóg um það í bili. Nú er nefnilega 20. desember runninn upp. Bara fjórir dagar til jóla. Tími til að draga djúpt andann, gera allt gott sem á að gera og undirbúa falleg jól.

Og bíða eftir sannleikanum í þessu Kompás-Kastljós-máli - eins og svo mörgum öðrum. Sannleika sem varla finnst í opinberum vígum á öldum ljósvakans. En hver veit. Ef að líkum lætur er jú framhald í næsta þætti.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

kvitt, og gleðilega hátíð

Ólafur fannberg, 20.12.2006 kl. 08:01

2 identicon

Segjum tvær...hvað er eiginlega í gangi Í sjónvarpinu? einnig www.jonas.is veit varla í hvorn fótinn skal stíga, og gerist það ekki oft!

Anna Benkovic (IP-tala skráð) 20.12.2006 kl. 12:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband