Vetrarsólstöður í Hallgrímskirkju

Eg get ekki látið hjá líða að vekja athygli á vetrarsólstöðum í Hallgrímskirkju annað kvöld - og hvet ykkur öll til að mæta!

Hugvekja2006.preview 

Ljós í myrkri

Tónlist og hugvekjur við vetrarsólstöður til stuðnings íslenskri náttúru

Í Hallgrímskirkju fimmtudagskvöldið 21. desember kl. 20

Heiðursgestir kvöldsins eru Vigdís Finnbogadóttir og Ómar Ragnarsson.

Tónlist flytja m.a. Ellen Kristjánsdóttir, Sigríður Eyþórsdóttir, Megas og Súkkat, Bryndís Halla Gylfadóttir, Áshildur Haraldsdóttir, Auður Hafsteinsdóttir, Laufey Sigurðardóttir, Elísabet Waage, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir, Egill Ólafsson, Þórunn Lárusdóttir, Hulda Björk Garðarsdóttir og Jóhann Friðgeir Valdimarsson.

Hugvekjur og ljóð flytja Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur, Pétur Gunnarsson rithöfundur, séra Birgir Ásgeirsson, Þórunn Valdimarsdóttir sagnfræðingur og Guðrún Ásmundsdóttir leikkona

Náttúruvaktin hvetur alla náttúruunnendur til að koma og njóta hugvekjunnar í Hallgrímskirkju. Aðgangseyrir er enginn, en tekið verður við frjálsum framlögum við innganginn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband