Ljóðadagur

Það er ljóðadagur í dag. Þegar ég var lítil var ég viss um að ég yrði ljóðskáld. Ég fyllti stílabækurnar mínar af ljóðum - um ömmu mína og lömbin mín og spítala og bíltúr og litla bróður og vinstri menn og hægri menn (uppáhalds konan mín á tímabili var Margaret Thatcher, fannst hún svaka flott. Svo þroskaðist ég.) - sem sagt um allt mögulegt og ómögulegt. Svo gerðist eitthvað og ég hætti.

Hvernig væri heimurinn öðruvísi ef við öll gætum lesið eitt ljóð á dag í rólegheitunum, jafnvel saman? En nú er ég orðin væmin.

Hér eru ljóð dagsins. 

 

ævintýri

 

fyrir þig

myndi ég gjarna

bera inn sólskin

í botnlausum potti

allan daginn

 

kreista sólina

svo gulir taumar

rynnu um þig alla

 

Þetta er eftir Ingunni Snædal - úr nýútkominni bók "Guðlausir menn - hugleiðingar um jökulvatn og ást".

 

Og annað eftir Toshiki Toma:

 

Fjallshlíð

 

Græn flauelsþakin jörð

lyft af fingrum Guðs

í gullinni geislaþoku mjúkri.

 

Friður leggur sig yfir hlíðina

og veltir sér niður í leik

við himneskt listaverk.

 

Eftir vin minn Toshiki, prest innflytjenda. Hann er ekki enn búinn að gefa út eigin ljóðabók en vonandi gerir hann það einn daginn, einn ljóðadaginn...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

kvitta

Ólafur fannberg, 6.12.2006 kl. 23:55

2 identicon

hér er annað gott eftir Toshiki Toma...á á vel við í þessum dimma tíma!

aðeins
eitt kerti á gluggasyllu
einn dropi af hjartahlýju

yfirbugar kolsvarta sorgarveröld

Anna Benkovic M. (IP-tala skráð) 8.12.2006 kl. 17:27

3 identicon

Pff ljóðabækur enda hvergi annarsstaðar en í rykugum hillum bókasafna eða hjá ættingjum. Ef snéri öðruvísi við væri ég búinn að gefa út tvær eða þrjár í stað þess að pota þessu á ljóð.is.

Gísli Friðrik Ágústsson (IP-tala skráð) 12.12.2006 kl. 00:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband