Að segja sitt

Nú er hægt að segja sitt. Hafa áhrif. Ég hvet ykkur öll til að fjölmenna á kjörstað í dag.

Ég býð mig fram í 2. sætið í sameiginlegu forvali VG í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi.

Ég býð mig fram vegna þess að ég vil styrkja þá frábæru forystusveit sem VG hefur á að skipa. Ég vil leggja allt í sölurnar til að við Vinstrigræn fáum glæsilega kosningu í vor. Ég er tilbúin til að vinna baki brotnu til að svo megi verða – og leggja mitt af mörkum í sterkri liðsheild Vinstrigrænna.

Hvers vegna? 

Vegna þess að ég trúi á málstaðinn.

Málstaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs er málstaður sem er aðkallandi í íslensku samfélagi. Brýn verkefni bíða á öllum sviðum. Í umhverfismálum, í kvenfrelsis- og innflytjendamálum, í velferðar- og heilbrigðismálum, í menntamálum – og í almennu hugarfari og gildismati okkar allra. Við verðum að stokka upp á nýtt, forgangsraða upp á nýtt. Allt helst þetta í hendur og á öllum sviðum er stefnubreytinga þörf.

Hinir síðustu eiga að verða fyrstir. Þau sem hafa verið skilin eftir á tímum græðgi og sinnuleysis eiga núna að fá að fara fram fyrir í röðinni. Ekki í öðrum heimi heldur hér hjá okkur. Ekki seinna heldur núna.

Ekkert samfélag er sterkara en veikustu hlekkir þess. Jöfnuður, samábyrgð, kvenfrelsi og réttlæti eiga að vera leiðarljós okkar inn í framtíðina. Ég trúi því að engum öðrum stjórnmálaflokki sé jafn umhugað um einmitt þetta eins og Vinstrigrænum.

Með því að kjósa í dag fáum við öll tækifæri til að mynda fjölbreytta og sterka sigursveit VG fyrir kosningarnar í vor. Góð blanda af reynslu og þekkingu, ferskleika og krafti getur gert sigurgöngu VG að veruleika – og breytt íslensku samfélagi til hins betra.

Forval VG fer fram í dag kl. 10-22 að Suðurgötu 3 í Reykjavík, Strandgötu 11 í Hafnarfirði og Hlégarði í Mosfellsbæ.

Vertu með!

Afstöðuleysi er ábyrgðarleysi. Svo einfalt er það. Tækifærið kemur bara á fjögurra ára fresti. Þú verður að grípa það núna.

Og svo aftur 12. maí.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þú ert bara svo ótrúlega klár, flott og frambærileg Lilja!

gangi þér rosalega og ótrúlega vel í forvalinu elsku Lilja mín

ástarkveðjur frá Árósum, Rósa 

G. Rósa Eyvindardóttir (IP-tala skráð) 2.12.2006 kl. 13:06

2 identicon

Sammála Rósu frá Árósum og því að "afstöðuleysi sé ábyrgðarleysi"...enda búin að kjósa.

Kær kveðja

Anna

anna (IP-tala skráð) 2.12.2006 kl. 20:50

3 identicon

Til hamingju með árangurinn, sókn er oft farsælust;)

Ragnhildur Kjeld (IP-tala skráð) 3.12.2006 kl. 02:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband