Föstudagur, 1. desember 2006
Íslendingaprófið
Það er í fréttunum í morgun að í Bandaríkjunum sé verið að taka upp nýtt próf fyrir innflytjendur. Í stað þess að þeir eigi núna að kunna hina ýmsu þætti um sögu Bandaríkjanna, eiga þeir að taka "lýðræðispróf". Þar á að tékka á því hvort þeir kunni nógu góð skil á lýðræðinu til að geta verið bandarískir borgarar.
Á kaffihúsunum hef ég einmitt heyrt þó nokkra Íslendinga tala um próf fyrir innflytjendur. Það hefur jafnvel verið skrifað um það í blöðin. Oftast er talað um íslenskupróf, en líka eru alls kyns hugmyndir um hitt og þetta sem þeir sem hingað koma erlendis frá þyrftu nú að læra til að vera gjaldgengir meðborgarar okkar. Talað er um íslenska menningu og sögu og ýmislegt tínt til sem hægt væri að mæla í prófinu. Sumir vildu jafnvel að kristin fræði kæmu þar við sögu.
Ég velti því fyrir mér hversu margir innfæddir Íslendingar mundu standast slík próf ef á reyndi. Líklega myndi okkur flestum ganga hálf brösulega. Værum við enn jafn miklir Íslendingar?
Ég er að hugsa um að dunda mér við það í dag að búa til mitt eigið próf. Kannski bara fyrir okkur innfædda Íslendinga. Eða kannski bara fyrir okkur öll, hvaðan sem við komum. Íslendingaprófið.
Þar væri til dæmis hægt að spyrja hvort viðkomandi kunni að segja satt eða hvort hún leggi í vana sinn að ljúga. Hvort henni finnist það skipta máli. Þar væri hægt að spyrja hvaða hlutverk rétt og rangt leikur í lífinu og hvernig hún sér muninn. Þar væri hægt að spyrja hversu miklum tíma hann eyðir með börnunum sínum og öldruðum foreldrum, og hvort hann gefur sér tíma til að staldra við og hlæja og hugsa um það sem mestu máli skiptir. Þar væri hægt að spyrja hvort það skipti máli að svínum og hænum líði vel í lífinu. Í lokin væri svo hægt að spyrja hvert sé fallegasta ljóð á íslenskri tungu, og hvert fallegasta orðið. Bara svona til að gefa lokahnykkinn á prófinu.
Hvað mundum við svo gera við niðurstöðurnar? Mundum við segja við suma "Ah! En leitt. Þú færð bara 6,5. Því miður, hefðir þurft að ná 7 til að vera ein af okkur. Bless, bless, gangi þér vel." Mundum við útskrifa þá sem ná 7 með pompi og prakt? Halda Íslendingaveislu?
Já, þau eru ýmis prófin sem við þreytum. En stærsta prófið er sennilega það að vera ærleg manneskja. Og ærleg manneskja leggur ekki slík próf fyrir einn né neinn. Af því að hún veit að þau eru full af bulli og segja ekkert um það hvaða mann við raunverulega höfum að geyma.
Ég vil frekar réttsýna og gjafmilda konu af framandi uppruna sem nágranna minn, hvort sem hún þekkir Hraundranga eða ekki, heldur en innfæddan alíslenskan eiginhagsmunasegg sem hugar að engu nema eigin hag og næstu gróðafíkn - en getur hugsanlega sagt mér hvaða ár Jón Sigurðsson fæddist (en það er alls ekki víst).
Í dag er 1. desember. Til hamingju með daginn, Íslendingar nær og fjær!
Við skulum fagna vel þessum gleðidegi í sögu þjóðarinnar. Og við skulum spyrja okkur sjálf hvaða manneskjupróf við stöndumst.
Athugasemdir
Hæ hæ! Fann bloggið þitt rétt í þessu, mun örugglega bæta því við rúntinn hjá mér:) Takk fyrir skemmtilegar samverustundir í brúðkaupi Eydísar og Sigga í sumar!!
kveðja Harpa Oddbjörns(frænka Eydísar)
Harpa Oddbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 1.12.2006 kl. 10:03
Þetta er fín grein eins og þín var von og vísa. Gangi þér vel á morgun.
Kolbeinn Óttarsson Proppé (IP-tala skráð) 1.12.2006 kl. 13:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.