Fimmtudagur, 30. nóvember 2006
Nauðgun í Pakistan. Nauðgun á Íslandi. Kvenfrelsi.
Um helgina mótmæltu þúsundir manna í Pakistan nýrri lagasetningu um nauðgun. Samkvæmt gömlu lögunum þurfti kona sem kærði nauðgun að leiða fram fjóra karlmenn sem hefðu verið vitni að meintri nauðgun til að henni væri trúað. Annars væri hún sjálf ákærð fyrir brotið. Kvenfrelsi?
Um helgina mótmælti líka fjöldi fólks hér á Íslandi. Við mótmæltum lélegri málsmeðferð, vægum dómum, fyrningu dóma, tillitsleysi, þöggun, sýkn - og svo mætti lengi telja. Kvenfrelsi?
Nauðgun er sálarmorð. Það er voðaverk sem á hvergi að líðast, undir engum kringumstæðum, aldrei. Ábyrgðin er gerenda, þeirra sem nauðga. Ábyrgðin er líka samfélags sem ekki stendur sig.
Hugrakkar og einstakar konur hafa gengið fram fyrir skjöldu og sagt sögu sína, opnað hjarta sitt og vakið aðra til meðvitundar. Þær eru sannar hetjur.En enn er langt í land í íslensku samfélagi.
Tölurnar einar segja alltof margt í þeim efnum. Af 103 kærum til lögreglu á árinu 2003 er varða nauðgun var aðeins sakfellt í 5 af þeim fyrir dómi. FIMM. Af hundraðogþremur. Og hversu margar komast aldrei inn í kerfið - fara aldrei á blað?
Þetta er þungur áfellisdómur yfir íslenska réttarríkinu. Voðaverkið sem framið er gegn fórnarlömbum nauðgana er ítrekað með því hversu léttvægt og illa er á því tekið. Fórnarlömbum er refsað, körlum er sleppt.
Kvenfrelsi er einn höfuðlykillinn að betri og réttlátari heimi. Hvort heldur er í Pakistan eða á Íslandi. Hvar sem er. Og einn af lyklum kvenfrelsis er öflug, markviss og harðskeytt barátta gegn kynbundnu ofbeldi. Það verður um leið að vera harðskeytt barátta gegn þeirri ómenningu sem fæðir slík voðaverk af sér - ómenningu sem er allt í kringum okkur og vex fiskur um hrygg í klámvæðingu samtímans.
Þau frábæru félagasamtök sem standa nú að dagskrá gegn kynbundnu ofbeldi eiga miklar þakkir skilið fyrir allt sitt starf í gegnum árin.
Í kvöld verður svo lokaviðburðurinn á dagskrá Jafningjafræðslu Hins Hússins "nóvember gegn nauðgun" með stórtónleikum í Ráðhúsinu kl. 20.
Allir mánuðir eiga að vera mánuður gegn nauðgun. Allir dagar dagur gegn nauðgun.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.