Flott framtíð VG

Eyddi deginum með Hemma Gunn í beinni útsendingu á Sýn að skýra skákir meistaranna á Afmælismóti Helga Ólafssonar sem haldið var í Reykjanesbæ í dag. Mótið státaði af flestum stórmeisturum landsins sem og Íslandsvininum Ivan Sokolov - hollenskum heiðursgesti frá Bosníu. Mótið var haldið í Listasal Duus húsa. Ég hef aldrei komið þar inn áður en það var virkilega áhugavert. Valgerður Guðmundsdóttir menningarfulltrúi gerði m.a. góða grein fyrir lista- og menningaruppbyggingu bæjarins. Einhver nefndi það við mig að ég væri að eyða deginum í vitlausu kjördæmi en ég sagðist ekki hugsa svoleiðis - ég hefði skyldum að gegna sem breyttust ekkert þótt prófkjör stæði yfir! Hananú!

Sem "skákskýrandi" hafði ég gaman að því að leiða áhorfendur í alls kyns ógöngur! Gat dundað mér við að segja þeim frá ólíklegustu getgátum um næstu leiki - sem stundum stóðust en stundum alls ekki! Við Hemmi gátum í það minnsta hlegið að þessu öllu saman...

Þegar ég kom heim undir kvöld horfði ég á Silfur Egils á netinu þar sem góðir gestir komu í heimsókn. Þar á meðal voru fjórar ungar konur frá VG, þær Andrea Ólafsdóttir, Auður Lilja Erlingsdóttir, Kristín Tómasdóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir.

Þær stóðu sig rosalega vel, voru málefnalegar og skýrar og tóku Egil dálítið í gegn! Þær gerðu honum í rólegheitunum m.a. grein fyrir eftirfarandi staðreyndum:

a) VG er eini raunverulegi pólitíski valkostur náttúruverndarsinna og þeirra sem vilja setja umhverfismál á oddinn. Það er dapurleg staðreynd í pólitísku landslagi á Íslandi í dag en það er RAUNVERULEIKINN. Því fyrr sem allir þeir sem vilja setja umhverfismál á oddinn gera sér grein fyrir þessu, þeim mun betra fyrir náttúruna.

b) VG hefur skýrustu og róttækustu kvenfrelsisstefnuna. VG þorir að láta verkin tala í þeim efnum (sbr. fléttulista) á meðan aðrir hika.

c) VG stendur fyrir friði og sjálfstæðri utanríkisstefnu. Hverjir aðrir gera það þegar á reynir? Hverjir aðrir hefðu raunverulega komið í veg fyrir samþykki Íslands fyrir Íraksstríðinu, hefðu þeir verið við völd?

d) VG er alvöru félagshyggjuflokkur með hreinar línur, ekki samsuðu hingað og þangað og út og suður þar sem dulin nýfrjálshyggja blandast saman við tækifærismennsku og skoðanakannanahyggju (nýyrði, var að finna það upp, held ég!). Við Vinstrigræn höfum sannfæringu og fylgjum henni - eins og þær stöllur bentu svo vel á.

Enginn flokkur er gallalaus, hvorki VG né aðrir. En hvers vegna að taka sénsinn á öðrum flokkum þegar VG hefur allt þetta með sér?!

Ég hugsaði líka með mér að flokkur sem státar af svo flottum ungum konum getur glaður horft til bjartrar framtíðar...

Að loknu spjalli við meðframbjóðendur mína steig Steingrímur J. á stokk hjá Agli og gerði grein fyrir bók sinni "Við öll". Mæli sem fyrr með þeirri lesningu! Er ég að verða eins og biluð plata?

Opinber umræða um samfélagsmál á ekki að vera hluti af afþreyingariðnaði eða skemmtanabransa, heldur liður í lýðræðislegri vakningu, vitund og þátttöku. Á okkar tímum er þróunin hins vegar slík að öll umræða einkennist meir af fyrirsagnaæði og örstuttum "innskotum" í stað yfirvegaðra rökræðna og tilheyrandi sýn á samfélagið. 

Bækur munu alltaf hafa þann óviðjafnanlega eiginleika að geta kafað dýpra og leitað lengra (og verið skemmtilegar og áhrifaríkar í leiðinni...). Spurt spurninganna sem við öll þurfum að vera að spyrja okkur sjálf. 

Sem sagt: höldum áfram að lesa!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

skák og mát

Ólafur fannberg, 27.11.2006 kl. 00:00

2 identicon

Ég held að seint verði ofmælt með bókinn góðu. Hún er bæði skýrandi og leiðbeinandi um margt. Hún teiknar vel upp hvernig er hægt að sigla til bjartrar og gæfuríkrar framtíðar, teiknar upp þau tækifæri sem við höfum til þess að gera tilveruna svo milu meira en bærilega, fyrir alla.

Gestur Svavarsson (IP-tala skráð) 27.11.2006 kl. 09:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband