Miðvikudagur, 22. nóvember 2006
Má ég vera memm?
Mig langar að vera memm í Rafiðnaðarsambandi Íslands.
Loks erum við búin að finna starfsgrein þá einu einustu þar sem konur hafa hærri laun en karlar. Það stóð í blaðinu í morgun að konur með sveinspróf eða meira væru með átján prósentum hærri daglaun en karlar.
Það er skrítið að ekki eru fleiri konur í þessari góðu grein. Arðsemi náms í rafiðnaðargreinum er 16% á meðan hún er 12% í viðskiptafræði og lögfræði. Af hverju erum við konur á rangri hillu?
Eitt er allavega ljóst: við konur í prófkjörum erum á kolrangri hillu miðað við niðurstöður prófkjara undanfarnar vikur. Okkur væri nær að ganga í Rafiðnaðarsambandið. Þar er auglýst eftir konum og við boðnar velkomnar í hópinn.
Það verður ekki sagt um konur í pólitík að þær séu boðnar sérstaklega velkomnar. Í prófkjörum er hæfum og duglegum konum skóflað út af listum og burt af þingi eins og ekkert sé. Skælbrosandi leiðtogar hampa sterkum listum karlalistum. Allir eru í skýjunum yfir öllum hinum körlunum. Lítið er auglýst eftir breyttum niðurstöðum.
Það þarf byltingu!
Við hliðina á fréttinni um hærri daglaun kvenna hjá Rafiðnaðarsambandinu er frétt um tillögur að nýjum reglum þar sem prófkjör á höfuðborgarsvæðinu megi mest kosta frambjóðanda 7,5 miljónir. Aldeilis róttæk aðgerð gegn fjármagnshyggjunni?! Er einhver með 7,5 miljónir á lausu? Ekki ég. Ekki nema kannski ég gerist rafiðnaðarkona og fái að njóta þess að vera kona á góðum launum næstu árin. Fjárhagsáætlunin fyrir mitt forval hljóðar upp á um það bil núll krónur. Ég er kannski aðeins að ýkja en það stemmir svona nokkurn veginn. Ég ætla að baka eina köku fyrir laugardaginn þegar við frambjóðendur VG bjóðum kjósendum í kaffi kl. 13-16 að Suðurgötu 3 (allir velkomnir). Ég ætla að hringja í félaga mína og segja þeim að þau geti kosið mig ef þau langar til. Kannski ég bjóði einhverjum heim í kaffi og köku líka. Það eru mín útgjöld.
Það á ekki að kosta okkur þegnana neitt að bjóða okkur fram. Það er hættulegt fyrir samfélagið allt ef það kostar okkur miljónir að fylgja hugsjónum okkar og sannfæringu og vilja láta gott af okkur leiða. Jafnvel þótt það sé í mesta lagi sjöfimm.
Mitt eina áhyggjuefni er að ef við konur flykkjumst í rafiðnaðarstéttina og hún verður kvennastétt þá er væntanlega ekki að leikslokum að spyrja. Allir vita hvernig fer með laun kvennastétta.
Þeirra bíður aðeins ein greið leið. Sú sama og kvenna í prófkjörum.
Ég vil byltingu!
Athugasemdir
heyr heyr... þess vegna er ég byltingarsinni.blogspot.com
Silja (IP-tala skráð) 26.11.2006 kl. 00:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.