Aufúsugestir?

Norsk Hydro er mætt aftur til leiks. Með eftirsjá í farteskinu yfir að hafa misst af gullnu tækifæri til að eyðileggja stórbrotna náttúrufegurð fyrir austan. Með einbeittan vilja og framtakssemi í farteskinu yfir að láta slík tækifæri ekki aftur úr greipum renna. Með tilhlökkun yfir því að takast á við enn stærri verkefni en áður hafa hér sést – 600 þúsund tonna álver.

Vá!  

Í Norsk Hydro búa nefnilega snjallir viðskiptamenn. Þeir hafa nef fyrir stórfenglegum fossum, gróðurlendi og náttúrugersemum á sprengi-útsölu. Hvaða mengunarspúandi alþjóðarisi hefur svo sem efni á því að láta eitt ódýrasta og tilkippilegasta álríki heims, Ísland, framhjá sér fara? Ríki sem er tilbúið til að fórna ómetanlegum náttúruperlum sínum eins og ekkert sé – svona þegar rjúkandi peningalykt og svifryk eru annars vegar? 

Það er langt, langt í frá að stóriðjan sé að syngja sitt síðasta hérlendis. Það er varhugaverð óskhyggja að ætla að svo sé. Æ fleiri náttúruperlur ligga undir og eru í hættu. Krumlum stóriðjunnar er ekkert heilagt – ekkert. Þær ætla hvergi að stöðva. Alþjóðlegir viðskiptarisar hafa nef fyrir tækifærum og gróða. Þeir sjá að tækifærin liggja hér. Hér á okkar fagra Íslandi. Þess vegna koma þeir aftur og opna nýjar skrifstofur.

 

ÁLVÆÐINGIN OG STÓRIÐJUSTEFNAN MUN EKKI STÖÐVAST NEMA VIÐ KJÓSUM RÉTT! SAMEINUMST Í ALVÖRU PÓLITÍSKU ÁTAKI OG HÓPUMST Í VG. NÚNA!

Fagurgalar er hættulegir. Þeir láta líta svo út sem stóriðjan sé að láta undan síga. En staðreyndirnar eru allt, allt aðrar. Stóriðjustefnan er á fullri og fljúgandi ferð og mun ekki stöðvast nema við fylkjum liði og segjum þvert, skýrt, ófrávíkjanlegt NEI 

Vinstrihreyfingin – grænt framboð er eina pólitíska aflið sem er treystandi í þessu máli. Stórsigrar eldheitra virkjanasinna í nýliðnum prófkjörum Samfylkingar segir allt sem segja þarf í þeim efnum.  

Taktu stökkið! Taktu ákvörðun núna um að í þessum kosningum eigi íslensk náttúra að fá þitt atkvæði. Ekki bíða eftir kosningaloforðunum, slagorðunum eða auglýsingunum. Núna er rétti tíminn til að gera upp við sig hvernig landið okkar á að líta út eftir tíu ár. 

Þú getur skráð þig í VG hér 

Sú sem líður fyrir ákvarðanafælni, flokksleysi og ístöðuleysi í þessum efnum heitir fallegu nafni: Náttúra Íslands. Skáldin okkar hafa ort um hana um aldir, forfeður okkar hafa sótt í hana kraft og innblástur. Okkar kynslóð er að eyðileggja hana.

Komdu!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband