Flott hjá Árna

Mikið var ég ánægð að sjá að tillaga samherja míns Árna Þórs Sigurðssonar um hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavíkurborg náði einróma fram að ganga í borgarstjórn í dag. Þetta var síðasti fundur Árna sem borgarfulltrúi og flott að kveðja með þessum hætti... betri aðbúnaður fyrir hjólreiðar getur sannarlega gert höfuðborginni gott.

Nú sýnast mér bílaborgarbörn hins vegar líka geta glaðst því að byrjað er að flytja inn rafmagnsbílinn REVA - sem mengar ekkert og eyðir minnstri orku. Algjört krútt svo ekki sé meira sagt og hlýtur að teljast vænlegur kostur fyrir þau sem vilja vera umhverfisvæn og fara svo etv. eitt af öðru að hjóla meira...

Ef fólk vill hins vegar fá kennslu í því hvernig það á að láta stela af sér hjólum þá er ég besti ráðgjafinn. Þar tekst mér afar vel upp. En svo er ég líka snillingur að finna þau aftur. Var til dæmis að finna hjólið mitt aftur bara í síðustu viku en því var stolið fyrir 3 vikum (ég fékk þetta hjól sem sagt að gjöf í sumar frá konunni minni, eftir að hafa látið stela af mér æðislegu hjóli öðru, og þar á undan enn öðru... og já, bíl líka).

Konan mín heldur því reyndar fram að ég hafi bara gleymt hjólinu þarna á þessum stað og ekki fyrir mitt litla líf munað hvar ég skildi við það fyrr en ég rambaði á það, en ég neita öllu slíku rugli harðlega...

Ég vil meina að meinið sé þetta fallega element í mér að treysta fólki... og skilja eftir ólæst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Ingi Lýðsson

Gott mál hjá Árna Þór og eftir þessu er ég búinn að bíða lengi.  Annars bendi vísa ég á bloggfærslu mína um þetta mál.  Þinn tími á Alþingi kemur.  Þá fylgir þú málinu eftir, ekki satt?

Sveinn Ingi Lýðsson, 18.9.2007 kl. 20:31

2 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Árni hafði allmörg ár til þess að koma þessu í framkvæmd.  Er þá gott eða slæmt að hann hafi komið þessu í gegn eftir allan þennan tíma?

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 18.9.2007 kl. 21:24

3 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Enn það eru ekki allir með element í sama gæðaflokki og þú  

Farðu því að brúka lása. SKÁK

Kjartan Pálmarsson, 19.9.2007 kl. 10:35

4 identicon

Það er gott að Árni hefur fundið eitthvað til að gera að sínu máli. Eins litlaus og ömulegur stjórnmálamaður hann er, enda vart við öðru að búast.

Annars vil ég lýsa ánægju minni með að kjarnakonan skuli vera farin að blogga aftur.

Guðmundur Sigurðsson (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 10:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband