Mánudagur, 20. nóvember 2006
Býr innflytjandi hér?
Málefni innflytjenda og Íslendinga af erlendum uppruna hafa lengi verið mér hugleikin. Stuttu eftir að ég flutti aftur heim til Íslands stóð ég ásamt félögum mínum í ReykjavíkurAkademíunni fyrir málþingi undir fyrirsögninni "Þjóðhátíð hverra?". Málþingið var haldið 16. júní 2001 í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní - sjá hér.
Síðan eru liðin fimm og hálft ár. Ýmsir hafa í mörg ár verið að vinna frábært starf í þessum efnum hérlendis. Það er skemmtilegt, lærdómsríkt, krefjandi og gefandi að vinna að þessum málum.
En betur má ef duga skal. Miklu, miklu betur. Það hefur komið berlega í ljós í meiðandi umfjöllun um þessi mál á undanförnum dögum og vikum.
Ef þið viljið kynnast viðhorfum mínum í þeim efnum getið þið nálgast grein sem ég skrifaði í Morgunblaðið á föstudag hér. Greinin heitir "Hættu að tala!".
Gott lýðræðissamfélag byggist á því að sem allra flestir hefji upp raust sína. Á Íslandi framtíðarinnar vona ég að enginn finni hjá sér þörf til að hætta að tala - og að enginn sé dæmdur til þagnar.
Raddir nýrra Íslendinga eiga að hljóma hátt og snjallt í samfélaginu - innan sala Alþingis jafnt sem á öðrum vígstöðvum. Sýnileiki, virk þátttaka og jafnrétti allra innflytjenda í samfélaginu er ekki bara þörf heldur nauðsyn. Fyrir mig, þig og okkur öll.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 19. nóvember 2006
Jólabókin í ár!
Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum þegar ég vaknaði í morgun. Þykkur snjór yfir öllu. Fullkomin afsökun til að vera bara heima í notalegheitum og lesa bók... Og hvaða bók er þá betri heldur en einmitt Við öll eftir Steingrím J. Sigfússon? Bókin var að koma út og ég er bara rétt nýbyrjuð að lesa en mér líst mjög vel á. Þegar ég er búin með bókina mun ég skrifa meira um hana en hér til að byrja með eru nokkrar vel valdar tilvitnanir:
"Það er bjargföst sannfæring mín að fáar aðrar þjóðir eigi jafn stórkostlega möguleika til að byggja upp og þróa farsælt, sjálfbært velferðarsamfélag og Íslendingar. Við erum ung og vel menntuð þjóð og höfum fengið til búsetu og varðveislu stórkostlegt land ríkt af auðlindum og möguleikum." Heyr, heyr!
ARFUR ELDRI KYNSLÓÐA - OG ÞAKKLÆTI OKKAR HINNA :Þó sjálfstæði þjóðarinnar hafi án efa nýst henni vel og við séum gæfusöm að búa í stóru og gjöfulu landi þurfti fleira til. Eldhugur, óbilandi dugnaður og bjartsýni aldamótakynslóðarinnar, fólksins sem vann að uppbyggingu íslensks samfélags á 20. öldinni, er einn stærsti þátturinn þegar leitað er skýringa á velgengni landsmanna. Kynni mín af því fólki sem varði starfsævi sinni á síðusu öld, 20. öldinni, til að byggja upp landið hafa sannfært mig um að þar fór óvenju vinnusöm kynslóð sem gerði miklar kröfur til sjálfrar sín og miklu fremur en til annarra. Fólk var á þessum tíma almennt vel meðvitað um það mikilvæga hlutverk sem það hafði með höndum. Verkefnið var að koma fótum undir sjálfstætt velmegunar- og menningarsamfélag í landinu. Hitt er svo annað mál hvort aðbúnaður og kjör aldraðra í dag endurspegli skilning og þakklæti fyrir það framlag. Dæmi hver fyrir sig.
KYNBUNDINN LAUNAMUNUR: Önnur hroðaleg meinsemd á íslenskum vinnumarkaði er kynbundinn launamunur. Flestar kannanir benda til að hreinn kynbundinn launamunur sé í það minnsta 15-16% hér á landi og fari síst minnkandi síðastliðin 10 ár. Heildarlaun kvenna eru aðeins um 2/3 af heildarlaunum karla og staðan óþolandi hvernig sem á málið er litið.
FÁTÆKT: Fátækt er ekki einskorðuð við hópa sem oftast eru nefndir til sögunnar, svo sem einstæða foreldra, öryrkja, aldraða, atvinnulausa, innflytjendur eða fólk sem hefur leiðst út í óreglu. Aldeilis ekki. Fátækt er staðreynd meðal fjölskyldna venjulegra fullvinnandi launamanna og skyldi engan undra eins og lægstu launum er hér háttað og í ljósi vaxandi skattbyrði láglaunafólks í ofanálag.
SAMFÉLAGSLAUN: Það þarf að innleiða nýja hugsun og nýja hugtakanotkun þegar við tölum um málefni aldraðra, atvinnulausra, öryrkja eða annarra hópa sem á ákveðnu æviskeiði eða vegna áfalla eða fötlunar njóta stuðnings frá samfélaginu. Forðast bera alla aðgreiningu. Við erum eitt samfélag, ein samábyrg fjölskylda, ein þjóð í stóra þjóðahafinu. Við skulum temja okkur að tala um samfélagslaun í stað bóta. Samfélagslaun þurfa að taka mið af vandaðri lífskjarakönnun og vera í samhengi við raunverulegan framfærslukostnað þannig að upphæðir þeirrs séu hafnar yfir hvundagsþrætur stjórnmálanna.
UMHVERFI: Það eru umhverfismálin sem langsamlega mestu skipta fyrir framtíðina, fyrir velferð mannkyns á komandi áratugum og öldum og fyrir sjálfa framvindu lífsins hér á jörðinni...
Því er eins farið með umhverfismálin og jafnréttisbaráttuna að menn verða að þora að stíga skrefið til fulls. Slík barátta er róttæk í eðli sínu. Hún krefst grundvallarbreytinga eigi að nást raunverulegur árangur. Umhverfishyggja sem er aðeins í nösum manna og til hátíðarbrúks á tyllidögum, sem ekki þorir að setja markaðs- og fjármagnsöflunum skorður, verður alltaf bitlaus að lokum. Rétt eins og jafnréttisbarátta kynjanna sem ekki þorir að segja forréttindum og yfirgangi karla gagnvart konum í feðraveldinu stríð á hendur, ekki þorir að vera femínisk, raunveruleg kvenfrelsisbarátta. Það að setja umhverfismálin í öndvegi, að forgangsraða í þeirra þágu, þýðir að menn viðurkenna að ekki er alltaf hægt bæði að sleppa og halda. Þó það sé lífseig og vinsæl klisja að verndun og nýting fara saman þá er það auðvitað ekki alltaf svo. Stundum verður einfaldlega að velja á milli verndunar eða eyðileggingar og það er þá sem á reynir.
Ég mæli með því að Við öll verði Jólabókin í ár. Ákall um vakningu!
Falleg kápa bókarinnar er einmitt eftir meðframbjóðanda minn Mireyu Samper og með fylgir listrænt bókamerki hennar líka. Já, það er ekki af frambjóðendum VG skafið!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 19. nóvember 2006
Ljóð í sjóð
Félagið gefur nú út bókina "Ljóð í sjóð" - listaverkabók með ljóðum og ljósmyndum af málverkum, ávarpi formanns MND og forseta Íslands. Geisladiskur fylgir með 13 lögum og 12 ljóðaupplestrum ásamt textaskrá ljóða, laga- og flytjendaskrá.

Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 18. nóvember 2006
Ísinn brotinn
Jæja. Þá er Íslandsmóti kvenna í skák 2006 loksins lokið og ég get farið að skrifa hér á síðuna - ekki seinna vænna!
Ég hafði hugsað mér að sleppa Íslandsmótinu í ár og einbeita mér að öðrum verkefnum, en þegar á reyndi fann ég að ég hreinlega gat það ekki. Það fylgir því ábyrgð að vera skákkona á Íslandi - við erum nefnilega alltof fáar! Við hinar eldri verðum sem mest við megum að gefa þeim yngri tækifæri til að tefla við okkur á móti sem þessu og sannreyna sig í landsliðshópnum. Það kom enda upp úr dúrnum að unga kynslóðin sló í gegn á mótinu og það eru gleðilegar fréttir.
En fyrst vil ég byrja á því að óska eina kvennastórmeistara okkar Íslendinga, Lenku Ptacnikovu, innilega til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn. Lenka er frábær skákkona og afgerandi fyrirmynd ungra íslenskra stúlkna sem eru að tefla. Hún er líka gott dæmi um þann jákvæða kraft sem innflytjendur koma með hingað til lands. Í kvennaskákinni hefur koma Lenku haft mikil áhrif. Hún ber með sér allt annan þjálfunar- og kennslubakgrunn í skák en við Íslendingar eigum að venjast og sjálfsagi hennar og samviskusemi er aðdáunarverð. Hún gefur mikið af sér og er ómetanlegur liðsmaður í íslenska kvennalandsliðinu. Til hamingju Lenka!
Ég verð líka að fá að óska ungu stúlkunum í mótinu til hamingju með glæsilegan árangur. Það er firnasterk kynslóð ungra stúlkna að koma upp í skákinni sem á án efa eftir að velta okkur hinum eldri af stalli fyrr en varir. Sérstakar hamingjuóskir fær hin 13 ára gamla Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir sem tefldi af miklu öryggi allt mótið og var lengst af í 2. sæti - þar til rétt í síðustu umferð að ég náði að skjótast upp fyrir hana. Frábær árangur hjá þessari ungu skákkonu og vonandi að hún, sem og allar hinar í hópnum þær Elsa María, Tinna Kristín, Jóhanna og Sigríður Björg, haldi áfram á þessari braut. Ég óska þeim öllum alls hins besta í framtíðinni og vona að þær fari að velta okkur gömlu kempunum allrækilega úr sessi. Ef þær fá áfram að njóta handleiðslu Lenku og annarra góðra meistara verður þess ekki langt að bíða.
Nú er baráttan á skákborðinu að baki í bili en önnur stærri bíður: sú sem nær lokaáfanga sínum 12. maí næstkomandi. Ég er full eftirvæntingar að vera nú búin að kasta mér út í þá baráttu og afar ánægð að sjá þann fjölbreytta og góða hóp frambjóðenda sem nú gefur kost á sér fyrir VG í Reykjavíkurkjördæmunum og Suðvesturkjördæmi.
Ég vona að sem flestir taki eftir því hvernig VG stendur að prófkjörsmálum á annan hátt en aðrir flokkar. Hjá okkur er það ekki fjármagn eða sölumennska sem ræður för, enda hlýtur það að teljast mjög varhugavert ef stjórnmálamenn standa í þakkarskuld (eða annars konar skuld) við tiltekin fyrirtæki eða styrktaraðila. Í anda VG er það málefnastaðan sem er lykillinn að góðu forvali. Tíminn framundan verður vonandi gefandi reynsla fyrir okkur öll sem í forvalinu stöndum - sem og þau sem kjósa!
Við frambjóðendurnir þrjátíu (já, þrjátíu!) vorum í dag á sameiginlegum forvalsfundi í Kópavogi þar sem við kynntum okkar sjónarmið og áherslur. Það var skemmtileg stemmning í hópnum og ég hlakka til að taka þátt í þeim verkefnum sem framundan eru með þessari vösku sveit.
Ég hreinlega trúi ekki öðru en að VG vinni stórsigur í kosningunum í vor. Íslensk náttúra og íslenskt velferðarsamfélag þarf nauðsynlega á því að halda.
P.S. Ég lét svo lítið að reyna að setja hér á síðuna auglýsingu fyrir fundinn í dag, en vegna fullkominnar vankunnáttu í tæknilegum hliðum þessarar síðu virðist það hafa mistekist herfilega (tæknileg mistök liggja víða...). Allavega, þið sem misstuð af fundinum í dag: það verður annar sameiginlegur fundur fljótlega \u0013 komið og hittið okkur!
Bloggar | Breytt 19.11.2006 kl. 15:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 18. nóvember 2006
Komdu og hittu frambjóðendur VG í dag kl.13-15 í Hamraborg 10, Kópavogi
Hlakka til að sjá ykkur sem flest,
kveðja Lilja
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 6. nóvember 2006
Hvers vegna?
Hvers vegna býð ég mig fram?
Svarið er einfalt: Mér er svo heitt í hamsi að ég get ekki á mér setið. Það er verið að ráðast á landið okkar - bókstaflega - og grafa undan því fallegasta sem við Íslendingar höfum fengið í arf.
Stórbrotin náttúra og samfélag þar sem allir standa jafnir ættu með réttu að vera lifandi leiðarljós okkar inn í framtíðina: leiðarljós sem ekkert fær hnikað. Þess í stað er þessum hugsjónum kastað á bálköst græðgi og neysluhyggju í æ ríkari mæli: misskiptingin og óréttlætið æðir áfram með ógnarhraða og náttúrugæðin skerðast í sama takti.
Á slíkum tímum er það er skylda okkar allra að taka afstöðu, láta í okkur heyra, beita okkur fyrir breytingum og bættu samfélagi. Taka skrefið til fulls.
Þótt mér sé heitt í hamsi er ég bjartsýn á framtíðina. Við Íslendingar höfum alla burði til að byggja hér upp gott samfélag þar sem við verndum landið og virkjum okkur sjálf til góðra verka. Við erum framsækin, sveigjanleg og kraftmikil þjóð og við njótum þeirra forréttinda að vera fámenn. Við getum því auðveldlega sameinast þegar mikið liggur við og unnið lítil kraftaverk ef því er að skipta. Nú liggur mikið við og við megum ekki bregðast.
Umhverfismál hafi aldrei átt jafn brýnt erindi í íslensku samfélagi og nú. Framtíð íslenskrar náttúru veltur á kosningunum í vor. Við sem viljum setja umhverfismál í öndvegi höfum aðeins einn skýran valkost í komandi kosningum: Vinstrihreyfinguna - grænt framboð sem stóð vaktina á meðan aðrir brugðust, og bregðast enn. Næstu fjögur ár munu skipta sköpum í baráttunni fyrir vernd og viðhaldi íslenskra náttúrugersema og mótun ábyrgrar umhverfisstefnu Íslendinga á alþjóðlegum vettvangi. Ég vil leggja mig alla fram við að taka þátt í því mikilvæga starfi.
Auk umbóta í umhverfismálum þurfum við framsækna stefnu í menntamálum og jafnréttismálum og við þurfum að treysta undirstöður velferðarkerfisins í samfélagi þar sem sívaxandi misskipting og sinnuleysi viðgengst. Þá þurfum við að taka rækilega til í innflytjendamálum og breyta þar vörn í sókn. Við þurfum að stöðva gettóvæðingu, jöðrun og mismunun gagnvart fólki af erlendum uppruna og tryggja virka þátttöku þeirra á jafnréttisgrundvelli í samfélagi okkar allra.
Skýrt gildismat er forsenda góðra verka. Ég vil beita mér fyrir hugarfarsbreytingu í samfélaginu þar sem virðing, samábyrgð og sálarheill eru í forgrunni - og þar sem allir skipta máli.
Ég gef kost á mér í 2. sæti í sameiginlegu forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmunum og Suðvesturkjördæmi sem fram fer 2. desember nk.
Þetta er mín fyrsta bloggfærsla! Á næstu dögum mun ég halda áfram að þróa þessa síðu og deila afstöðu minni til lífsins og sýn á samfélagsmál með öllum þeim sem lesa vilja...
Að lokum þetta: Til hamingju skákjöfur Hrafn Jökulsson með enn eitt þrekvirkið! Hrafn sat við í 34 tíma í Kringlunni um helgina og tefldi 250 skákir til styrktar barnastarfi Hróksins á Grænlandi. Það var magnað að fylgjast með Hrafni eflast við hverja raun og máta hvern andstæðinginn á fætum öðrum í þágu nágranna okkar á Grænlandi. Þið getið skoðað eina af glæsilegri skákum maraþonsins hér.
Hamingjuóskir líka til Hrundar Hauksdóttur sem um helgina sigraði B-flokk Íslandsmóts kvenna og tryggði sér þar með sæti í A-flokki Íslandsmótsins að ári - aðeins 10 ára að aldri! Ég gerðist sjálf svo glæfraleg að vera með í A-flokki og er nýkomin frá viðureign minni við Elsu Maríu Þorfinnsdóttur, sem er ein af efnilegustu skákstúlkum landsins. Mér tókst að vinna og er því altént komin á blað eftir fyrstu umferð. Þið getið lesið meira um Íslandsmót kvenna í skák 2006 hér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)