Gjöfin málefnalega

Ég get ekki látið hjá líða að birta eftirfarandi lista yfir rök gegn stækkun álversins í Straumsvík sem var afhentur fulltrúum Alcan í gær, um leið og gjöfinni með Bó var skilað. Listinn er innlegg hins öfluga þverpólitíska hóps Sólar í Straumi - og gjöf til Alcan.

1. Loftmengun
Frábær árangur í baráttunni við loftmengun í Straumsvík síðustu 20 árin verður að engu við stækkun.

2. Sjónmengun
Lóðin eftir stækkun verður jafn breið og hún er löng í dag. Línumannvirki vegna stækkunar á útivistarsvæði Hafnfirðinga og í nágrenni við íbúabyggð eru óásættanleg.

3. Mengunarsvæði
Byggingarland okkar Hafnfirðinga er takmarkað. Í framtíðinni þurfum við að fá Straumsvíkursvæðið og 10 ferkílómetra mengunarsvæði álverkssmiðjunnar undir blandaða íbúðabyggð, iðnað, verslun og þjónustu. Með því að stækka álbræðsluna núna eyðileggjum við framtíðartækifæri okkar.

4. Samfélagsmál
Við erum ekki lengur fátækur útgerðarbær, við búum ekki við atvinnuleysi, við eigum ekki ótakmarkað land og við reiknum ekki með að börnin okkar vilji vinna í álbræðslu. Við erfum ekki landið frá foreldrum okkar, við fáum það að láni hjá börnunum okkar.

5. Fjármál
Allt byggt land í Hafnarfirði í dag er 12 ferkílómetrar. Við stækkun skuldbindum við 10 ferkílómetra byggingarlands undir mengunarsvæði um ókomna framtíð. Í stækkunarhugmyndunum er ekki gert ráð fyrir krónu til okkar Hafnfirðinga fyrir þessa fórn. Óljós loforð um greiðslur fyrir fasteignagjöld og hafnarnotkun koma ekki í staðin fyrir hana.

6. Atvinnumál
Stækkun álbræðslunnar hefur engin úrslitaáhrif fyrir atvinnulíf í Hafnarfirði. Í dag vinna 230 Hafnfirðingar hjá álverkssmiðjunni . Í Hafnarfirði hefur störfum fjölgað undanfarin 7 ár um 240 störf á ári án þess að álbræðslan í Straumsvík hafi stækkað.

7. Virkjunarmál
Stækkun kallar á virkjun neðri hluta Þjórsár og hefur óafturkræfar afleiðingar fyrir náttúru Íslands.

8. Byggðaþróun
Innan fárra ára verður Straumsvíkursvæðið eitt það verðmætasta á höfuðborgarsvæðinu með tilliti til staðsetningar. Nágrenni við höfuðborgina og nágrenni við alþjóðaflugvöllinn gerir þetta landssvæði eftirsóknarvert fyrir hátækni- og sprotafyrirtæki. Mengunarsvæðið takmarkar eðlilega byggðaþróun í Hafnarfirði.

9. Ábati fyrir íslenskt samfélag
"Jafnvel þó að Íslendingar kæmust í hóp stærstu álframleiðenda heims og myndu virkja alla hagkvæmustu virkjunarkosti landsins, myndi arðsemi þess og hagur fyrir íslenskt samfélag aldrei verða meiri en sem nemur framlagi eins öflugs útrásarfyrirtækis” (Ágúst Guðmundsson, Bakkavör, febrúar 2006).

10. Loftslagsbreytingar
Í starfsleyfinu er engin takmörkun á útblæstri gróðurhúsaloftegunda sem valda loftlagsbreytingum sem eru alvarlegasta umhverfisvandamál í heiminum í dag.

Þetta var gjöfin til Alcan frá Sól í Straumi. Þetta er brýn gjöf fyrir bjartari framtíð. Hver eru rök Alcan fyrir stækkun þegar öllu er á botninn hvolft? Rök þeirra eru þau sömu og rök allra alþjóðlegra stórfyrirtækja: krafan um eiginn gróða. Ef við ímyndum okkur að Alcan sé að stækka við sig af gjafmildri góðgerðastarfsemi fyrir Hafnarfjörð eða Ísland, þá erum við sannarlega týnd í skóginum.


Gríman fellur

"Við munum ganga grímulausir inn í þessa umræðu" segir Hrannar Pétursson upplýsingafulltrúi Alcan í Straumsvík í Blaðinu í morgun. Hvað á maðurinn við?

Þau hin grímulausu munu að sögn "kappkosta að upplýsa fólk um það hvernig við sjáum þetta fyrir okkur" - stækkun álversins í Straumsvík.

Þær upplýsingar um hvernig þau sjá þetta fyrir sér felast á þessu stigi málsins í gjöf með Bó Halldórs og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Alcan keypti átta þúsund geisladiska og dreifði þeim innpökkuðum i álpappír til allra heimila í Hafnarfirði. Svona sem málefnalegt innlegg í umræðuna um hag bæjarbúa til framtíðar.

Ég er væntanlega ekki sú eina sem á erfitt með að skilja hvernig Bó og Sinfóníuhljómsveit Íslands geta innpökkuð í ál verið boðberar málefnalegrar umræðu um framtíð Hafnarfjarðar - eða náttúrugersema við Þjórsá. En ekkert er nýtt undir sólinni.

Hjá sumum væri þetta hins vegar ekki titlað sem gjöf, hvað þá hluti af ákalli um málefnalega umræðu, heldur eitthvað allt annað. 

Það er ef til vill við hæfi að spyrja Alcan nánar út í grímuleysið. Er gríman fallin?


Heppnaðist vel

Fréttamynd 417258

Arnold Schwarzenegger á mynd frá árinu 1998. Reuters

Aðgerð á fæti Schwarzeneggers tókst vel

"Kvikmyndaleikarinn og ríkisstjórinn Arnold Schwarzenegger gekkst undir skurðaðgerð í dag til að lagfæra fótbrot. Að sögn lækna gekk aðgerðin vel en Schwarzenegger verður undir eftirliti lækna á sjúkrahúsi í Los Angeles í þrjá daga."

Ég las þetta í frétt í gærkvöldi þegar ég braut fjölmiðlabann jólanna.

Er fólk svo að kvarta undan því að það vanti jákvæðar fréttir af heimsviðburðum?

Ég stóð annars í þeirri meiningu að Schwarzeneggerar heimsins brotnuðu ekki. Hvorki á fæti né annars staðar. Þess vegna er hjúkk einu réttu viðbrögðin. Hjúkk að aðgerðin heppnaðist vel.

Annars hefði mátt bæta við fréttina um fótbrotið á batavegi lítilli setningu. Eins og til dæmis þessari:

"Þess má geta í forbifarten að hin fótbrotna Hollywoodstjarna á batavegi, Terminator, Innflytjandi og Repúblikani, hefur lagt fram margfalt framsæknari og róttækari tillögur til bóta í umhverfismálum heldur en íslenskum ráðamönnum hefur hingað til dottið í hug að gera."

Mér hefði fundist pínu leiðinlegt að lesa þessa klausu en pínu áhugavert. Pínu pínlegt en satt. Það hefði verið hægt að bæta við ýmsu fleiru en mér finnst það svo leiðinlegt á jólunum að ég ætla ekki að gera það. Það á að vera gaman á jólunum. Jákvæðni allt um kring. Við skulum þess vegna bara halda okkur við fréttina um aðgerðina sem heppnaðist vel.

Ég er líka með hugann meira við aðra kvikmyndastjörnu þessa dagana.

Nefnilega þessa hér:

Image

Ida Nørregaard (født i 1929)

Mér finnst hún æði. Ég var búin að leggja til við Steinu að við færum með sjónvarpið upp á háaloft yfir hátíðarnar þar til á gamlárskvöld, en svo nenntum við því ekki og í gærkvöldi var ég mjög fegin. Ég flatmagaði og naut þess að horfa á Krónikuna eftir langt hlé. Ég er yfir mig ánægð yfir því að útlit sé fyrir að Ida sé að losa sig við forpokaða leiðindapúkann Sören prófessor og vona bara að hún kýli á það. Svo vona ég líka að hún og Palle nái saman. Ég verð virkilega spæld ef það endar ekki þannig. Jafnvel þótt Palle hefði verið ferlega lélegur að neita Evrópusambandsskeptíkerum um lán hjá bankanum. Skamm Palle. 

Image

Palle From (født i 1927)


Gleðileg jól


Jesus coming to Earth

Gleðileg jól. Hafið það sem allra best yfir hátíðarnar.

Guðfríður Lilja


Sæt í bleiku

Jólaljóð

Já, þetta er jólabókin mín í ár.

Pen vísbending fyrir þau ykkar sem enn eru ekki búin að kaupa handa mér gjöf. Ef þið eruð mörg sem eigið það eftir og viljið komast hjá því að ég fái tíu eintök af Jólaljóðum - eitt eintak er hugsanlega alveg nóg - þá hef ég heldur ekkert á móti þessari hér. Eða þessari hér.

Er þegar búin að benda á aðrar bækur hér á slóðinni sem mér líst vel á, kann ekki við að endurtaka það. Önnur er um jökulvatn og ást og hin um geðveiki, enn önnur um velferðarsamfélag á tímamótum. Ýmsar fleiri líka sem koma til greina. 

Ef þetta er ekki nóg þá finnst mér þessi stúlka hér hrein dásemd.

Finnst ykkur ég flínk að setja inn linka?! Er að æfa mig.

Annars skuluð þið bara alveg sleppa því að gefa mér jólagjöf. Mig vantar ekki neitt. En þið megið gefa öllum strákum sem þið þekkið inngöngu í Karlahóp Femínistafélags Íslands og láta NEI-gegn-nauðgunum-bol fylgja með (fæst í Dogma, Laugavegi, ágóði rennur til frekari aðgerða). Já, ég er að auglýsa bolina, vil að þeir dreifist út um allar trissur.

Ættingi minn einn náinn gefur annars alltaf bara staðfestingu á að lagt hafi verið inn til þessa eða hins góðgerðamáls.

Gáttaþefur
Ketkrókur

Ég var stödd í nátt- og nærfatabúð í gær að bíða eftir afgreiðslustúlkunni. Hún var að afgreiða ungan mann og sýna honum hinar og þessar gerðir af brjóstahöldurum. Hann var ferlega lengi að drolla við þetta allt saman, skoðaði vandlega hvert einasta par og þurfti hjálp til, gat ekki ákveðið neitt. Á einum tímapunkti heyrði ég hann svo segja "Jú, þetta er allt í lagi sko. En áttu kannski eitthvað í bleiku? Mér finnst hún svo sæt í bleiku." Óþolinmæðin í mér rauk burt og ég kaus hann umsvifalaust mesta krúttið á staðnum. Hann þorði ekki alveg en þorði samt, lét sig hafa það að lokum að spyrja um það sem hann raunverulega langaði í. Fyrir hana sem er svo sæt í bleiku...

Svei mér þá ef þið megið ekki bara sleppa því alveg að gefa mér jólagjafir OG afmælisgjafir (á afmæli snemma í janúar...) ef þið bara takið stökkið og kjósið rétt í vor. X við grænu kvenfrelsis-jafnaðar-velferðar-byltinguna. Beygja til vinstri. Taka stefnuna til betri framtíðar, í átt að réttlæti.

Mæting 12. maí nk. Sjáumst!


Baráttukveðjur

 

Langar til að senda baráttukveðjur til allra björgunarsveitarmanna og -kvenna. Þeirra sem hafa verið (og eru enn) að berjast úti í kuldanum og óveðrinu um landið. Ég dáist að úthaldinu og þróttinum og viljanum til að hjálpa...

Ef við værum í Ameríku væri sagt: "They´re Our Heroes".

Þegar ég hugsa um það er kannski ekki vanþörf á að senda baráttukveðjur til allra hinna líka. Ekki bara þeirra í formlegu björgunarsveitunum með nöfnum, heldur líka allra hinna.

Allra hinna sem eru einnig að berjast fyrir betra Íslandi, hver með sínum hætti. Að reyna að bjarga því sem þeim þykir vænt um frá drukknun. Breyta því sem þeim þykir rangt í eitthvað sem þeim þykir rétt. Breyta jafnvel sjálfum sér, byltast í kerfinu, berjast í bökkum. Þar fer líka fram hörð og tvísýn barátta með vindinn beint í fangið.

Muna að styðja ólíkar björgunarsveitir í ár og á nýju ári...

Er annars hlaupin út í lognið í Reykjavík. Út að leika.


Sól hækkar

 mynd eftir robba

Ég er hvorki lítil né smágerð en mér tókst einhvern veginn að fjúka inn í Hallgrímskirkju í kvöld. Sem betur fer hélt ljúfur maður hurðinni opinni upp á gátt svo mér tókst að lokum að fjúka mér inn - í stað þess að velkjast um eins og strá úti á stétt. 

Inni beið hugljúf stund. Fjöldi fólks fyllti kirkjuna á Vetrarsólstöðum Náttúruvaktarinnar. 

Guðrún Ásmundsdóttir las á áhrifamikinn hátt úr ljóðum og þýðingum Matthíasar Jochumssonar. "Og andinn mig hreif upp á háfjallatind..." orti Matthías árið 1870, uppi á Esjutindi!

Viðar Hreinsson velti því fyrir sér hvort hið moldríka samfélag væri að gleyma þeirri mold sem það væri sprottið úr. Hann vitnaði í ljóð Hannesar Péturssonar þar sem spurt er hvort við eigum landið skilið...

Pétur Gunnarsson kallaði eftir róttækri viðhorfsbreytingu og vitnaði í Kjarval - sem sagði náttúruna hina miklu kirkju alheimsins, Guðshús okkar tíma...

Séra Birgir Ásgeirsson fjallaði um ríki guðs og ríki mannsins og hvernig verkefni mannfólksins sé að vinna voninni styrk og bera kærleikanum vitni... 

Ellen Kristjánsdóttir söng eins og engill, Þórunn Lárusdóttir, systir hennar og maður sömuleiðis (!), Bryndís Halla, Áshildur og Auður fundu fagra hljóma og það sama gerðu aðrir - Sigríður Eyþórs, Jóhann Friðgeir, Egill og fleiri. Megas og Súkkat gengu fylktu liði inn kirkjugólfið við fögnuð áheyrenda - og minntu okkur á að hold er mold, hverju sem maður klæðist. Sólveig Arnarsdóttir leikkona pakkaði þessu öllu inn með glæsibrag...

Þetta var miklu betra kvöld en það kann að hljóma í minni upptalningu! Það var eitthvað verulega gott í loftinu. Sessunautur minn í flíspeysu og kuldaskóm var með tárvot augu allan tímann.

Sólin er aftur byrjuð að hækka á lofti og tími vonarinnar að styrkjast.


Innihald jólanna?

 Copyright Gospel Communications International, Inc - www.reverendfun.com

Nei. Er það nokkuð?


Upp Brekkuna

brekkan_209x285

Jólin í ár eiga að vera bókajól...

Brekkan er bók sem ég byrjaði að lesa seint í gærkvöldi. Hún hefur fengið frábæra dóma. Í ritdómi Steinunnar Ingu Óttarsdóttur í Morgunblaðinu segir m.a. svo:

„BREKKAN er fyrsta skáldsaga Carl Frode Tiller (f. 1970). Hún kom út í Noregi árið 2001 og vakti mikinn fögnuð meðal lesenda og gagnrýnenda þar í landi. Efniviður hennar er geðveikin í sinni verstu mynd og ofbeldi í fjölskyldu og samfélagi. Helstu persónur eru nafnlausar og það er sögumaðurinn einnig. Hann er um tvítugt og dvelur á geðveikrahæli þegar sagan hefst og þjáist m.a. af ofsóknaræði og þráhyggju sem hann reynir af veikum mætti að halda í skefjum. Uppvöxtur hans er varðaður sársauka, misþyrmingum, meðvirkni og niðurlægingu... Fjölskyldan, skólakerfið og barnaverndaryfirvöld hafa brugðist honum. Afsprengið er glæpamaður sem er blindur af heift og snargeðveikur en um leið aumkunarverður í einsemd sinni og sjúklegri sektarkennd.“   

 Í lok ritdóms Steinunnar segir svo:

„Tiller skrifar á nýnorsku, ritmáli sem sífellt færri Norðmenn tala og á því verulega undir högg að sækja. Þýðing Kristians Guttesen er afburðagóð, honum tekst að halda sprengikrafti frumtextans til haga og skila sjúkum og heiftúðugum hugarheimi til lesandans þannig að samúð með sögumanni og alger viðbjóður á gerðum hans berjast um yfirráðin. Alveg mögnuð saga, það er hreinlega hægt að finna íkornatennurnar naga mann að innan og skordýrin skríða undir húðinni löngu eftir að lestrinum er lokið.“

Ég setti þetta í feitletrað af því að ég fékk sjálf að fylgjast með því hvernig minn góði félagi Kristian Guttesen vann sér til húðar við þýðinguna. Gaman að svona vel tókst til.

Hér eru ljóð eftir Kristian:

Ljóðin þín 

Þarna eru þessi ljóð sem segja sína
sögu þarna eru þau
ekki einhvers konar skeljar sem sváfu
af sér eilífðina í fallegri fjöru
eða loftsteinar sem féllu til jarðar ofanúr
holu hveli
          sem væri kannski í nær lagi
heldur blóðið á vörunum undan
tönnunum jafnvel á nöglunum
þegar lífsblómið bærðist og ég
hvíslaði drepa drepa
ljóðin sem lögðu af stað í öndvegi
áður en sjóreiðin hófst
þarna eru þau
           löðrandi syngjandi og þú
spyrð kannski eilítið hikandi viltu
vera minn vængur í nótt ég
get það ég get það
ekki

Við lok einmánaðar

seint í gær rétt áður en ég sofnaði
 sá ég næturstjörnu
 sem virtist nær jörðu en aðrar
 stjörnur


Meðvitaðir jólasveinar

Gluggagaegir 

Jólasveinarnir okkar eru orðnir róttækir umbótasinnar og eldheitir femínistar. Kíkið á þá sem komnir eru til byggða hér.

En hvers vegna liggur tíundi jólasveinninn á gægjum? Honum er lýst svo í íslenskum heimildum:

"Hann er vanur að laumast að gluggum og gægjast inn. Oft girnist hann þá eitthvað sem hann sér og reynir seinna að komast yfir það. Náskyldur honum er sveinn sem í gömlum heimildum er nefnur Gangagægir og hefur trúlega gægst inn í bæjargöngin í svipuðum erindagjörðum."

Það vantar sem sagt enn örlítið upp á meðvitaða og femíniska uppeldið hjá Gluggagægi. En batnandi sveinum er best að lifa...

Það er hins vegar umsvifamikill dagur framundan hjá mér. Ég ætla að fara í jólabúðina mína, Bókina - Fornbókaverslun Braga Kristjónssonar á horni Hverfisgötu og Klapparstígs, og dunda mér þar í nokkra klukkutíma á höttunum eftir jólagjöfum. Þeir feðgar Bragi og Ari eru uppáhalds jólasveinarnir mínir - og flottustu verzlunareigendur bæjarins. Luma á ótrúlegustu dýrgripum og skemmtan.

Á Þorláksmessu ætla ég svo að heimsækja þá aftur með fríðu föruneyti. Þá er nefnilega aldrei að vita nema við fáum smá hressingu til að styrkja beinin.

Læt þetta nægja í bili. Það er allt á fullu...

 

Kanínan snjalla og þróski eiginmaðurinn

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband