Laugardagur, 3. febrúar 2007
Skýrsla og aftur skýrsla
Langar til að taka undir orð Birgittu Jónsdóttur og hvetja alla sem vettlinga geta valdið til að sjá mynd Al Gore: An Inconvenient Truth.
Ég furða mig alltaf jafn mikið á framtaksleysinu hvað varðar hlýnun andrúmsloftsins, hörmulegum afleiðingum þess og ábyrgð okkar mannanna. Íslenska ríkisstjórnin sefur værum blundi, ypptir öxlum af áhugaleysi eða afneitar öllu saman.
Á þetta bara að virka svona? Í fleiri ár kemur hver skýrslan á fætur annarri um nauðsyn aðkallandi aðgerða, sagt er frá þeim í fréttum og við "upplýst" um málið en svo gerist ekkert?!
Mikið verður gaman að taka til hendinni í þessum efnum. Gerum Ísland að fyrirmynd annarra í loftlagsmálum! Vilji er allt sem þarf!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 2. febrúar 2007
Hvað er að?
Ég var að lesa blöðin í dag og ég er öskureið eftir lesturinn.
Hvað er að? Hvað gengur eiginlega að okkur? Hvernig getur Hæstiréttur vogað sér að milda dóma fyrir alvarleg kynferðisbrot gegn börnum. Úr skítnum tveimur árum í 18 mánuði. Refsiramminn leyfir allt að 12 ára fangelsi.
Hvers vegna er refsiramminn aldrei nýttur til fulls þegar um er að ræða einhverja hörmulegustu glæpi sem framdir eru í okkar samfélagi? Hvernig getur samfélagið leyft sér að ítreka glæpi á borð við kynferðisafbrot og nauðganir með því að meðhöndla málin á þennan hátt.
Yngsta stúlkan sem brotið var á í þessu tiltekna máli í dag var þriggja ára gömul. Sagt er frá þessu á forsíðu Morgunblaðsins í dag.
Réttarkerfið endurspeglar gildismat samfélagsins. Þegar menn draga sér fé er allt rauðglóðandi alls staðar og ekkert gefið eftir í dómhörku, rannsóknum og fangelsisvistun. Þegar kemur að glæpum gegn sálarheill barna og kvenna um alla ævi þá er þetta niðurstaðan. Enn og aftur.
Hvað tekur það fórnarlömb kynferðisafbrota og nauðgana mörg ár að taka út sína þjáningu? Oftar en ekki heila lífstíð.
Og þetta er það sem við bjóðum þeim. Þetta er okkar gildismat, okkar skilningur á réttu og röngu.
Það þarf að mótmæla þessu kröftuglega og fá alvöru breytingar í gegn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Föstudagur, 2. febrúar 2007
Arabíukonur
Fjallgarður sleggjudóma, fáfræði og andúðar í garð arabaheimsins er líklega sá sem ber hvað hæst við himin um þessar mundir. Allir þeir sem helga sig því að brjóta steina og björg úr þeim fjallgarði eiga þakklæti okkar og stuðning skilið.
Það hefur varla farið framhjá neinum að um árabil hefur Jóhanna Kristjónsdóttir unnið ötult starf í þessum efnum.
Þar til ég las um það á síðu ofurbloggarans hér hafði hins vegar algjörlega farið framhjá mér að Jóhanna er nú upp á eigin spýtur að safna liði til að annast menntun stúlkna og kvenna í Jemen. Hægt er að lesa meira um þetta frábæra framtak á heimasíðu Jóhönnu, en þar segir meðal annars um þær konur sem um ræðir:
"Sumar hafa lært að lesa og sumar eru algerlega ólæsar og óskrifandi. En allar haldnar óslökkvandi löngun til að bæta aðstöðu sína og fjölskyldna sinna með því að taka þátt í þessu sauma og lestrarnámskeiði sem er tvær annir."
Þær eru ólíkar Arabíukonur á öllum aldri. Skyndilega er byggð lítil brú á milli Jemen og Íslands - sem allir geta verið með í að styðja. Takk!
Þetta minnir mig reyndar á aðra ofurlitla brú til Jemen, þegar við í kvennalandsliðinu í skák kepptum við landslið Jemena á Ólympíumóti um árið. Þær voru hreint út sagt dásamlegir andstæðingar - vinalegar, glaðlegar og kappsamar, og við kusum þær skemmtilegustu andstæðingana okkar (ásamt vinkonum okkar frá Jómfrúreyjum). Ég á einhvers staðar mynd af viðureigninni og ætla að reyna að grafa hana upp.
Saumaskapur, lestur og skák, Jemen og Ísland. Steinvala veltur niður fjallshlíð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 31. janúar 2007
Matur er mannsins megin
Matur skiptir máli fyrir vellíðan okkar og hamingju.
Heilu skólarnir í Bandaríkjunum hafa umturnast við það eitt að óhollu mataræði í mötuneytum hefur verið skipt út fyrir fyrsta flokks hollustumat. Munurinn í hegðun barna, einbeitingu og líðan við það að borða hollt hefur reynst með ólíkindum.
Í könnunum sem greint er frá í Morgunblaðinu í morgun kemur í ljós að það er langt í frá að mötuneyti grunnskóla á Íslandi fylgi manneldismarkmiðum sem skyldi. Unnar kjötvörur, feitar og saltar eru t.d. of algengar í skólamötuneytum og of lítið um fisk. Ávextir eru sjaldséðir.
Líkt og á svo mörgum sviðum í íslensku samfélagi nútímans ríkir ójöfnuður í þessum efnum: mötuneytismatur skólanna er afar misjafn af gæðum. Sum börn fá miklu betri mat en önnur.
Offita íslenskra barna er sívaxandi vandamál og kyrrseta eykst. Sjónvarps- og tölvugláp tekur meira en fjóra klukkutíma á dag hjá stóru hlutfalli nemenda í 6., 8. og 10. bekk.
Hvað felur slík æskulýðsuppskrift í sér til framtíðar?
Lífshátta- og neyslusjúkdómar eru sjúkdómar framtíðarinnar - sjúkdómar barnanna sem nú alast upp. Hvernig þau borða og drekka, hvernig þau (ekki)-hreyfast, hvernig þau hugsa, hvernig þau leika sér, anda og gleðjast: um þetta snýst heilbrigði þeirra í framtíðinni í ríkum mæli.
Gildi þess að kenna börnunum okkar að borða rétt er ótvírætt. Í þeim efnum skiptir máli að öll börn sitji við sama borð í skólamáltíðum og að öllum skólum landsins sé gert kleift að fylgja manneldismarkmiðum eftir í hvívetna.
Matur er mannsins megin!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 30. janúar 2007
Afturgöngur hrella
Pólitísk afturganga er mitt á meðal vor. Hún lætur öllum illum látum og stelur sviðsljósinu. Og rétt eins og í Íslendingasögunum leggst hún á sitt eigið heimafólk í miklum ham: bankar og ber á allar dyr og glugga, hrópar og galar og sækir á. Það er ekki flóafriður. Haugnum er ábótavant. Upp skal risið.
Hún ku vera komin til að minna á sig - og sína.
Á meðan draugur hrellir má sjá þungbúinn formann hlaupa um ganga með forláta kjörkassa í leit að lykli. Upp skal ljúka kistu. Kúbein er kallað til verks en lyklar finnast að lokum í miðri ringulreið og forláta konu ásamt fríðu föruneyti er vísað í braut. Eftir sitja einörð karlmenni með áhyggjur af Múhameð.
Lykilhafar auðvaldsins láta sér fátt um finnast. Jóakim aðalönd og bestu vinir hans eru pollrólegir því að ekkert breytir þeirra hag - hvorki ringulreið, draugagangur né hamfarir. Miljörðunum og miljörðunum og miljörðunum heldur áfram að rigna og rigna og rigna beint ofan á alla hina miljarðana. Mjúklega lenda þeir saman í sömu djúpu vösunum sem endalaust taka við.
Líkt og ósýnileg blá kraftaverkahönd væri að verki - eða vinveittur draugur.
Rip Rap og Rup og allir hinir litlu andarungarnir halda sér til hlés og borga brúsann.
Og eins og hendi væri veifað tekur endurborin eðalönd sig til, gengur aftur og iðrast. Vonandi alveg nóg. Jafnvel bara miklu meira en nóg. Svona miðað við tæknileg mistök.
Það er fjör að vera Íslendingur. Nóg um að vera. En hvað sem á dynur þá sameinumst við öll í að halda með handboltaliðinu - ÍBS, í blíðu og stríðu. Við erum víst stuðningsmenn en ekki áhangendur. Þekkjum við muninn?!
Áfram Ísland!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mánudagur, 29. janúar 2007
Ýsa og réttlæti
Menning er að gera hlutina vel. Tökum soðna ýsu. Í menningarlegu byggðarlagi er ýsa ný. Kannski sækir maður hana glænýja niður á bryggju fyrir hádegið. Svo er hún soðin í vatni eða bökuð í ofni vatnslaus. Það má ekki votta fyrir blóði inni við beinið. En fiskurinn má ekki heldur vera alveg laus frá beininu: hann á að vera að byrja að losna. Og hann á að gljá eins og laukur gljái. Þetta er menning.
Segir Þorsteinn heitinn Gylfason í riti sínu "Réttlæti og ranglæti".
Á blaðsíðunni á undan vitnar hann í heilagan Ágústínus kirkjuföður sem spyr:
Án réttlætis, hvað eru þá ríkin nema stórkostleg glæpafélög?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 28. janúar 2007
Neysluvaran ég
Ég las í viðskiptatímariti um daginn haft eftir sérfræðingum í ímyndarhönnun og almannatengslum að í raun væri það "glettilega líkt að markaðssetja stjórnmálamenn og almenna neysluvöru." Þá er talað um stjórnmálamenn sem "vöru" og stjórnmálaflokka sem "vörumerki". Stjórnmálamenn megi til dæmis bera saman við flatskjái sem vöru.
Svona er talið allt í kringum okkur einhvern veginn orðið. Gegnsýrt af markaðssetningu. "Heimili okkar er orðið að sviði þar sem við sýnum afrekin okkar" segir í forsíðufrétt á föstudag. Heimili sem sýndarmennska, ekki skjól. Og þetta telst eðlilegt?!
Í greininni í viðskiptatímaritinu er einnig sagt að kjósendur "kaupa ekki ef frambjóðandi úr 101 Reykjavík talar um landbúnað og byggðamál."
Svo kemur þessi skemmtilega klausa: "Þannig má segja að Sjálfstæðisflokkurinn selji kjósendum sínum að aukin lífsgæði felist í meiri kaupgetu meðan lausn vinstri grænna sé sú að við getum prjónað fleiri lopavettlinga til að selja hvort öðru."
Það var nefnilega það! Hvar í flokki ætli þessir ímyndafræðingar standi? Hlutlausir, væntanlega?
Þótt kjósendur "kaupi" ekki að ég hafi skoðun á landbúnaðar- og byggðamálum þá ætla ég nú samt að tjá mig um það, burtséð frá allri ímyndarráðgjöf eða spám um "hvað selur". Ég er Íslendingur - og ég hef skoðun á íslenskum landbúnaði og blómlegri byggð í sveitum landsins. Ef enginn "kaupandi" finnst á skoðunum mínum þá verður bara að hafa það. Þær eru þarna samt.
Að stjórnmálaflokkar séu vörumerki, stjórnmálamenn flatskjáir og að framtíðarsýn okkar sé sú að prjóna fleiri lopavettlinga - úff! Hvað fær maður borgað á tímann fyrir ímyndarráðgjöf? Væntanlega meira en fyrir klukkutímann í pólitík. Nema ef maður er... úps ekki orð um það meir.
Stjórnmálaöfl og fleiri til hafa nú aldeilis gert annað eins í gegnum tíðina - að redda sér á innihaldslausri ímynd, loforðum, fjármagni og auglýsingaherferðum í aðdraganda kosninga. Með PR-ráðgjafa á hverju snæri. En vonandi komast þau ekki fullkomlega upp með það í þetta sinn. Jafnvel þótt flatskjáir selji eins og heitar lummar - eins og gullin kosningaloforð, ný hárgreiðsla og breitt bros.
Hver er annars að útdeila peningum hvar þessa stundina? Hverjir eru að græða á kosningunum 2007? Hvaða verðmiði hangir á atkvæðum okkar Íslendinga?
Hver veit.
Leikurinn er að hefjast og hvort eð er enginn tími fyrir leiðindi í dag - spáum í það seinna.
En eftir stendur að það er grundvallarmunur á sannfæringu og sölutrikki. Grundvallarmunur á því að mynda sér skoðun sem breytist eins og lauf í vindi í takt við skoðanakannanir eða tjá innri sýn hreinskilnislega, burtséð frá viðtökum, kaupendum, könnunum eða ímyndarráðgjöf. Endurskoða hug sinn svo ef eitthvað raunverulega sannfærir mann um það.
Þau sem hafa sannfæringu tala vegna þess að þau finna sig knúna til þess á einhvern hátt, ekki vegna þess að þau bíða ólm eftir kaupendum.
Og ég er persónulega sannfærð um að stjórnmálaöfl sem vörumerki sé ekki beinlínis það sem íslenskt samfélag þarf á að halda.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sunnudagur, 28. janúar 2007
Ungir Íslandsmeistarar
Íslandsmót barna fór fram í gær í Skákhöllinni Faxafeni og ég get ekki látið hjá líða að birta nokkrar myndir af helstu verðlaunahöfum mótsins.
Íslandsmeistari barna 2007 er leiftursnjall Eyjapeyi, Kristófer Gautason, en Taflfélag Vestmannaeyja hefur haldið uppi afar öflugu æskulýðsstarfi undanfarin ár. Félagið hlaut nýverið Fréttapýramída Frétta í Eyjum fyrir framlag sitt til íþrótta og er vel að þeim heiðri komið. Nýi Íslandsmeistarinn frá Vestmannaeyjum er glæsilegur fulltrúi þess góða starfs sem þar hefur farið fram - og einn af mörgum bráðefnilegum ungum skákmönnum sem þar eru að alast upp.
Íslandsmeistari stúlkna varð Hrund Hauksdóttir úr Skákdeild Fjölnis í Grafarvogi (og nemandi í hinum víðfræga skákskóla, Rimaskóla), en Fjölnir og Grafarvogsbúar hafa einmitt líka fætt af sér hvern unga skákmeistarann á fætur öðrum undanfarin ár. Hrund er frábær skákkona og ég hlakka mikið til að fylgjast með þroska hennar og framförum næstu árin - hún er nú þegar byrjuð að safna Íslandsmeistaratitlum. Ef hún heldur áfram eins og hingað til verður hún farin að velta okkur gamlingjunum úr sessi fyrr en varir - ásamt ýmsum aðeins eldri stallsystrum sínum á unglingsaldri sem eru henni góðar fyrirmyndir. Hér eru nokkrar myndir frá mótinu:
Til hamingju krakkar!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 27. janúar 2007
Til hamingju með daginn
Kvenréttindafélag Íslands á 100 ára afmæli í dag.
Hinn 27. janúar 1907 hittust fjórtán konur á heimili Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og bjuggu afmælisbarnið til. Þær komu saman til að vinna að jafnrétti kynjanna og auknum réttindum kvenna í stjórnmálum og atvinnu.
Sú barátta stendur enn. Kynbundinn launamunur er staðreynd - og er þó bara ein af mörgum birtingarmyndum kynjamisréttis. Konur fá lægri laun fyrir sömu vinnu 27. janúar 2007. Pukrið og leyndóin sjá um það. Stéttir sem konur halda uppi eru langtum verr launaðar og framlag kvenna þannig vanvirt. Og þegar litið er til stjórna fyrirtækja og stofnana mætti halda að konum væri meinaður aðgangur. GOLF - Gentlemen Only Ladies Forbidden.
Hvenær er kominn tími á verulega róttækar aðgerðir til breytinga? Er ekki einmitt við hæfi að það sé núna - á 100 ára afmælinu?
Talandi um Kvenréttindafélagið þá er hinn öflugi og glaðbeitti varaformaður þess að bjóða sig fram til varaformanns á öðrum vettvangi núna um helgina. Það verður spennandi að sjá hvernig fer.
Til hamingju með daginn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 23. janúar 2007
The Terminator og Við
Breskir íhaldsmenn og Arnold Schwarzenegger (The Terminator, ríkisstjóri Kaliforníu) eru langtum meðvitaðri, skynsamari og framsýnni en við Íslendingar í umhverfismálum.
Schwarzenegger!
Finnst okkur það ekkert pínu leiðinlegt?
Nú er jafnvel útlit fyrir að Bush ætli að einhverju marki að láta segjast varðandi hlýnun andrúmsloftsins. Bandaríkjamenn voru hundskammaðir fyrir það á sínum tíma að skrifa ekki undir Kyoto-samkomulagið.
En áttu þeir það alfarið skilið?
Vissulega. En það er þó altént mun heiðarlegra að neita að skrifa undir samkomulag heldur en að skrifa undir og standa svo ekki við það sem lofað er. Skrifa undir en finna svo alls kyns leiðir til að komast hjá því að standa við það.
Stendur Evrópa við Kyoto? Ríkin öll sem skrifuðu undir, börðu sér á brjóst og þóttust góð (eins og vanalega) - eru þau raunverulega að gera það sem þau sögðust ætla að gera?
Og hvað með okkur og íslenska sérákvæðið um að fá að menga meira fyrir stóriðjuna?
Ef svo fer fram sem horfir og við byggjum öll þessi álver sem blasa við, nú þá er meira að segja sérstaka mengunar-sóða-ákvæðið okkar ekki einu sinni nóg fyrir okkur. Þá brjótum við það líka.
Hreinsum til. Breytum um stefnu. Verum svolítið flott og stórhuga.
Áfram Ísland...
![]() |
Forstjórar hvetja Bush til aðgerða í loftslagsmálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)